Á norðanverðu Snæfellsnesi er spáð sunnan roki og mjög snörpum vindhviðum, en slíkir vindar geta valdið foktjóni. Því hefur verið gefin út appelsínugul viðvörun fyrir Breiðafjörð og gildir hún fram á kvöld.
Í viðvörun segir að spáð sé suðaustan og sunnan 18-28 m/s og að hvassast verði á Snæfellsnesi þar sem vindhviður geti farið yfir 40 m/s, sem er hættulegt fyrir ökutæki. Lausamunir fjúka líklega og möguleiki er á staðbundnu foktjóni. Búast má við talsverðri rigningu. Annars staðar er gul viðvörun í gildi á sama tíma.
Samkvæmt hugleiðingum fara skil lægðarinnar austur yfir land í nótt og þá snýst í allhvassa eða hvassa suðvestanátt með skúrum.
Svo kemur ný lægð í kjölfarið á morgun og þá gengur í sunnan- og suðvestan storm eða rok með rigningu, einkum sunnan- og vestantil á landinu. Á mánudag á að lægja smám saman, en áfram er búist við vætusömu veðri.
Geti komið til vegalokanna
Á vef Vegagerðar segir að varað sé við miklum sviptivindum á norðanverðu Snæfellsnesi frá hádegi og fram á kvöld. Allt að 40–45 m/s þegar verst láti. Þá eigi einnig að vera byljóttur vindur á Vestfjörðum og undir kvöld megi nefna í Skagafirði, milli Varmahlíðar og Sauðárkróks, í Fljótum, Eyjafirði vestanverðum og í Ljósavatnsskarði. Varað er við því að vegna appelsínugulrar viðvörunar geti frá hádegi í dag komið til einhverra lokana á vegum með stuttum fyrirvara vegna mikils vinds.
Nánar um veður á vef Veðurstofu og færð á vef Vegagerðar.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag: Gengur í sunnan- og síðar suðvestan 18-25 m/s með rigningu, talsverð úrkoma sunnan- og vestantil á landinu. Hiti 6 til 11 stig.
Á mánudag: Suðvestan 10-18 í fyrstu, en lægir síðan. Rigning eða skúrir, hiti 4 til 10 stig.
Á þriðjudag: Suðlæg eða breytileg átt og rigning eða slydda. Smáskúrir eða slydduél vestantil seinnipartinn og styttir upp austanlands um kvöldið. Kólnandi veður.
Á miðvikudag: Suðlæg átt og bjart með köflum, en skúrir eða slydduél við suðvestur- og vesturströndina. Hiti 0 til 5 stig yfir daginn, en um eða undir frostmarki inn til landsins.
Á fimmtudag: Austlæg eða breytileg átt, úrkomulítið og svalt en dálítil slydda eða snjókoma um tíma norðaustanlands.
Á föstudag: Útlit fyrir norðaustanátt með éljum.