Samkvæmt tilkynningu fóru tveir dælubílar á vettvang en það tók um tvo tíma að klára verkefnið vegna þess hve snúið það var. Ekki má nota vatn inni í álverinu auk þess sem þar er mikill rafmagnsstraumur.
„Með góðri aðstoð vélamanna og starfsmanna álversins tókst að leysa verkefnið,“ segir í tilkynningunni.