25 ára gömul kona er alvarlega særð eftir að skotum var hleypt af í íþróttahöll í Älvsjö í Suður-Stokkhólmi um níuleytið að staðartíma í gærkvöldi.
Íþróttaleikir voru í gangi í nokkrum sölum íþróttahallarinnar, Kämpetorpshallarna, þegar skotunum var hleypt af. Þar á meðal var vel sóttur fótboltaleikur. Fjöldi manns var því á staðnum og nokkurn tíma tók að rýma húsið.
Árásarmaðurinn komst undan áður en lögreglu bar að en leit að honum stendur enn þá yfir.