Von er á hvassviðri og stormum á stórum hluta landsins í dag, sérstaklega á vestanverðu landinu. Gular viðvaranir eru í gildi víða frá og eftir hádegi.
Lausamunir gætu fokið og búast má við rigningu og talsverðri úrkomu um tíma.
Í Breiðafirði er hvassasta veðursins að vænta. Þar hefst gul viðvörun klukkan 11:00 en frá 16 til 20 er appelsínugul viðvörun á svæðinu.
Á vef Veðurstofu Íslands segir að í Breiðafirði sé að vænta suðaustan- og sunnanáttar upp á 18-28 metra á sekúndu. Hvassast verði á Snæfellsnesi. Þar geti vindhviður farið yfir 40 metra á sekúndu, sem sé hættulegt fyrir ökutæki. „Lausamunir fjúka líklega og möguleiki á staðbundnu foktjóni,“ segir á vef Veðurstofunnar.
Gular viðvaranir verða á höfuðborgarsvæðinu, í Faxaflóa, á Ströndum og Norðurlandi vestra, á miðhálendinu, í Breiðafirði og á Vestfjörðum fram á kvöld eða nótt. Sú fyrsta tekur gildi klukkan 11, í Breiðafirði, og sú síðasta klukkan 15, á höfuðborgarsvæðinu.
Nánar má lesa um viðvaranir vegna veðurs hér.
Veðurstofa Íslands segir að í dag verði vaxandi sunnanátt og smáskúrir víða en bjartviðri norðaustanlands. Sunnan- og suðaustanátt upp á 15-25 metra á sekúndu og hvassast vestanlands. Víða verði talsverð rigning en að mestu þurrt norðaustantil, hiti á bilinu 6-12 stig.