Skýrsla var gefin út í gær sem sýnir fram á að eyðing regnskógarins í Brasilíu hefur ekki verið minni í fjóra áratugi.
Niðurstöður skýrslunnar þykja jákvæðar fréttir fyrir forsetann Luiz Inacio Lula da Silva aðeins örfáum dögum áður en kosningar um forsetaembættið verða haldnar í landinu. Afar mjótt er á mununum á milli Lula og mótframbjóðanda hans, Flávio Bolsonaro.
Eyðing skógarins dróst saman um 42% á milli ára
Frá ágúst 2025 til júlí 2026 voru 3325 ferkílómetrar af skóglendi ruddir. Það er samdráttur sem nemur tæpum 42% frá árinu áður og er umfangsminnsta skógarhöggið síðan mælingar hófust árið 1988.
Þegar Lula bauð sig fram til forseta hét hann því að binda endi á ólöglegt skógarhögg í Brasilíu af völdum stórgripabænda og fyrirtækja sem stunda ólöglegan námugröft.
Eyðing regnskóganna hafði aukist verulega í stjórnartíð forvera Lula, Jair Bolsonaro, en svo vill til að hann er faðir mótframbjóðandans Flávio Bolsonaro.
Ekkert ólöglegt skógarhögg árið 2030
Eftir að skýrslan var kunngjörð ítrekaði Lula fyrri loforð sín. „Markmið okkar er að ekkert ólöglegt skógarhögg verði stundað árið 2030,“ sagði hann í færslu á X í gær.
Um 60% Amazon-frumskógarins eru í Brasilíu en hann gegnir lykilhlutverki við að vinna koltvísýring úr andrúmsloftinu og sporna gegn loftslagsáhrifum.
Aukinn ágangur á regnskóginn hefur því verið mikið áhyggjuefni en eyðing skógarins hefur aukist verulega á undanförnum árum.
Í stjórnartíð Jairs Bolsonaro töpuðust um 11.600 ferkílómetrar af skóglendi, eða tæpum 60% meira en á fjórum árum þar á undan.