Fórnarlömb árásarmannsins sem hóf skotárás í Silver Rail-grunnskólanum í Oregon í gær voru börn með sérþarfir. Árásarmaðurinn var sextán ára drengur og ljóst þykir að skólastofa þeirra var skotmark hans. Þrjú börn, 5, 8 og 11 ára gömul, létust og 25 ára gamall kennari.
Samkvæmt lögregluyfirvöldum á staðnum hét árásarmaðurinn Griffin John og var hann áður nemandi með sérþarfir við skólann. Hann var þó ekki skráður í neinn skóla á svæðinu þegar árásin var gerð.
John braut sér leið inn í bygginguna með því að skjóta á læstar dyr með haglabyssu og hélt rakleiðis að stofunni sem hýsti kennslu fyrir börn með sérþarfir.
Hlédrægur einfari
John bjó einn með móður sinni og lýsa nágrannar hans honum sem hlédrægum einfara sem gekk ætíð í svörtum fötum og þagði þegar kastað var á hann kveðju. Þeir segja að bæði John og móðir hans, Shauntai Nickerson, hafi haldið sig út af fyrir sig.
Faðir tveggja nemenda við skólann, Keylub Giamanco, sá til Johns þegar hann klifraði yfir girðingu til að komast að skólanum.
Giamanco var sjálfur vopnaður, elti John inn í skólann og skaut hann til bana, en þá hafði John þegar banað fjórum og sært annað 7 ára barn og 54 ára gamlan kennara.