Sveitadraumurinn breyttist í mar­tröð - Vísir

Sveitadraumurinn breyttist í mar­tröð - Vísir

Sveitadraumurinn breyttist í mar­tröð - Vísir

Það var í apríl árið 2022 sem hún vaknaði upp við að búið var að reisa níðstöng með afhöfðuðum hesti við heimili hennar. Nokkrum árum áður hafði fjölskyldan látið drauminn um að flytja í sveit rætast og sest að á Skrauthólum við Esjurætur. En draumurinn breyttist fljótlega í martröð þar sem andleg málefni, frjálsar ástir, nakið fólk og nágrannaerjur enduðu með ósköpum.

Kristjana og eiginmaður hennar, Guðni Halldórsson, hafa búið á Skrauthólum 2 á Kjalarnesi síðan árið 2016. Þar ætluðu þau að njóta sveitalífsins með börnum sínum og dýrum en lentu í langvarandi deilum við nágranna sína sem ráku starfsemi undir nafninu Sólsetrið.

Í nýjasta þætti Eftirmála, í umsjón Þórhildar Þorkelsdóttur og Nadine Guðrúnar Yaghi, rifjar Kristjana upp hvernig samskiptin breyttust smám saman og segir frá fjölmennum samkomum, óhugnanlegum atvikum og ítrekuðum tilraunum fjölskyldunnar til að fá yfirvöld til að grípa inn í.

Paradís við Esjurætur

Hjónin höfðu fengið lánað land undir hesta sína í Arnarholti og heilluðust af Kjalarnesi í útreiðartúrum sumarið 2016. Þau ákváðu að flytja í sveitina og keyptu íbúðarhúsið á Skrauthólum 2, með útsýni yfir sjóinn, fjöllin og höfuðborgina.

„Okkur fannst þetta svæði bara svo geggjað að við fórum að leita okkur að íbúðarhúsnæði þarna upp frá. Okkur fannst þetta bara svo mikil paradís að vera þarna, sem það er,“ segir Kristjana í þætti Eftirmála.

Aðeins tuttugu til þrjátíu metrum frá húsinu standa gömul útihús sem áður tilheyrðu sama bæ en höfðu verið seld sérstaklega. Þar bjuggu hjón ásamt syni sínum og ráku Sólsetrið, þar sem boðið var upp á gistingu í innréttuðum strætisvögnum og viðburði tengda andlegum málefnum.

Kristjana rifjar upp fyrstu áramótin á staðnum þegar faðir hennar sá fólk dansa í kringum eld fyrir aftan húsið. Fjölskyldunni hafi þótt það fremur skemmtilegt en ógnandi og hún hafi ekki gert neinar athugasemdir við að nágrannarnir lifðu öðruvísi lífi en hún sjálf.

Kristjana segir fjölskyldunni í fyrstu hafa þótt óhefðbundinn lífsstíll nágrannanna skemmtilegur. Hún hafi stundum setið með þeim við varðeld og hlustað á kyrjun, en með kórónuveirufaraldrinum urðu breytingar. Nágrannahjónin skildu, maðurinn flutti og Linda Mjöll Stefánsdóttir varð eftir með syni sínum.

Hundurinn beit dótturina

Fyrstu alvarlegu ágreiningsefnin tengdust hundi nágrannanna sem Kristjana segir hafa gengið lausan og verið ágengur. Hún hafi óttast að vera úti við, þar sem hundurinn kom oft urrandi og geltandi að henni, og ítrekað beðið um að honum yrði haldið undir eftirliti.

Þegar Kristjana nefndi að hún kynni að þurfa að girða eigin lóð til að fjölskyldan gæti verið þar óáreitt hafi Linda svarað: „Þú getur ekki farið að girða í kringum óttann þinn.“

Kristjana segir viðbrögðin lýsandi fyrir það hversu erfitt hafi verið að ræða við nágrannakonuna um praktísk vandamál.

Að hennar sögn beit hundurinn að lokum dóttur hennar og var hundinum síðar lógað.

„Þarna var búið að halda svona fimm fundi um þennan blessaða hund. Það er bara rosalega lítið svona röklegt samtal að eiga sér stað eða tillit til einhvers.“

Áform um andlegt samfélag

Eftir skilnaðinn hafi Linda rætt hugmyndir um að byggja upp andlegt samfélag á staðnum. Kristjana segist strax hafa mótmælt því að fjöldi fólks tæki sér fasta búsetu svo skammt frá heimili fjölskyldunnar.

„Ég var ekki að flytja í sveit til að eiga tuttugu nágranna. Þá hefði ég keypt mér eign í Grafarvogi. Það er bara þannig.“

Samkvæmt Kristjönu fjölgaði íbúum og gestum á svæðinu og starfsemin fór meðal annars að tengjast tantra, kynlífi og hugvíkkandi efnum. Þar hafi um tíma búið maður sem gaf sig út fyrir að vera kynlífsheilari og haldnir verið fjölmennir viðburðir, meðal annars hátíð sem nefndist Wild Love Festival og hún telur að um áttatíu manns hafi sótt.

Við flúðum að heiman. Ég var aldrei spurð: „Er í lagi að ég haldi hérna einhverja svona ástarhátíð?

Hún leggur áherslu á að hún hafi ekkert á móti því hvernig aðrir kjósi að lifa en vilji ekki þurfa að taka þátt í því óumbeðin. Fjölskyldan hafi meðal annars kvartað undan háværri tónlist, trommuslætti, góli og mikilli bílaumferð. 

Kristjana og Guðni leituðu til heilbrigðiseftirlits, byggingarfulltrúa, sýslumanns, lögreglu og borgaryfirvalda til að fá skýringar á því hvaða starfsemi væri heimil. Sérstaklega hafi þau reynt að fá upplýsingar um heimildir til að leigja út strætisvagnana og halda fjöldasamkomur í húsnæði sem var skilgreint sem útihús. Kristjana benti á að um væri að ræða starfsemi sem færi fram örskammt frá íbúðarhúsi þar sem börn byggju og að fjölskyldan hefði ekki átt neina aðkomu að ákvörðunum um umfang hennar.

Samkvæmt Kristjönu vísuðu stofnanirnar þeim gjarnan hver á aðra. Hún segir fjölskylduna hafa upplifað að enginn tæki ábyrgð á sama tíma og fólk utan frá gerði grín að kvörtunum þeirra.

„Ég upplifi mig rosalega mikið bara eins og einhverja nöldrandi Karen,“ segir hún og bætir við að henni finnist málið alls ekki fyndið.

„What? I was born this way“

Kristjana rifjar upp atvik þegar sonur hennar fór upp veginn við útihúsin til að leita að týndu dýri.

Maðurinn, sem hún lýsir sem kynlífsheilara, hafi þá gengið að honum nakinn og brugðist illa við þegar drengnum varð um.

Hann labbar að honum nakinn og syni mínum brá, eðlilega. Og maðurinn verður svona aggressífur við hann og segir bara: „What? I was born this way.“

Kristjana segir að nágrannakonan hafi síðan spurt son hennar hvort hann hefði eitthvað á móti nöktu fólki. Drengurinn hafi svarað neitandi en bent á að hann ætti líka sex ára systur. Hún segist hafa beðið Lindu um að maðurinn klæddist fötum utandyra en fengið þau svör að atvikið hefði átt sér stað á landareign Lindu. Fjölskyldan hafi ekki tilkynnt atvikið til lögreglu enda enn reynt að leysa málin með samtali.

Við annað tækifæri hafi hún og dóttir hennar verið í gönguferð í fjallinu fyrir ofan heimilið og mætt um tíu nöktum konum. Hún segir að slíkar uppákomur hafi orðið til þess að hún hætti að nýta umhverfið með sama hætti og áður.

„Mig langar bara að vera í mínum göngutúr hérna með hundana mína og dóttur minni,“ segir hún.

Þú getur bara ekkert þröngvað þínum lífsstíl yfir á mig.

Börn velkomin á umdeildan viðburð

Starfsemin hafði fengið jákvæða umfjöllun í sjónvarpi, meðal annars þegar Vala Matt heimsótti Sólsetrið fyrir Ísland í dag í október 2021. Þar var rætt um endurnýtingu gamalla vagna og tengsl náttúru og fólks, en Kristjana segir þá þegar hafa verið komnar upp erjur vegna þess sem fram fór á svæðinu.

Í apríl 2022 var síðan auglýst samkoma á vegum Sólsetursins þar sem boðið var upp á erótík, nánd, dans og kakóathöfn. Í auglýsingunni var jafnframt vísað til „hins heilaga meðals“ og notað sveppatákn sem þáttastjórnendur telja hafa verið tilvísun í hugvíkkandi efni. Sérstaka athygli vakti að börn voru boðin velkomin.

Kristjana sá auglýsinguna þegar henni var deilt á Facebook og áréttaði opinberlega að fjölskylda hennar tengdist viðburðinum ekki. 

Mér finnst ekki að bjóða börnum inn í þannig aðstæður.

Kristjana rifjar jafnframt upp ummæli sem hún segir konu tengda viðburðinum hafa látið falla um barnagirnd. Þau ummæli urðu einnig að umfjöllunarefni í fjölmiðlum árið 2022.

Hrosshaus við afleggjarann

Föstudaginn 29. apríl 2022, viku eftir að samkoman var auglýst, fannst níðstöng við afleggjarann að Skrauthólum. Á stönginni var afskorinn hrosshaus, vafinn klæði, og í opnum kjafti hans var miði með skilaboðum.

Guðni var staddur erlendis þegar maður úr nágrenninu bankaði upp á hjá Kristjönu og sýndi henni mynd af stönginni. Hún segist hafa fengið mikið áfall og strax talið að einhver tengdur nágrannadeilunum væri að hóta fjölskyldunni.

Þarna upplifði ég mig í lífshættu.

Guðni var þá formaður Landssambands hestamannafélaga og Kristjana óttaðist að hrosshausinn hefði sérstaka skírskotun til fjölskyldunnar. Hún fór þegar að kanna hvort allir hestar þeirra væru heilir á húfi.

„Ég hélt að þau hefðu gert þetta og ég byrjaði á að kíkja á hvort að hestarnir sem voru niðri á túni hjá okkur væru ekki allir með höfuðið á,“ segir hún. Henni hafi ekki dottið annað í hug en að um líflátshótun væri að ræða.

Lögregla kom á vettvang og fjarlægði miðann úr hrosshausnum en Kristjana segist ekki muna hvaða orð stóðu á honum. Henni hafi verið svo brugðið að hún náði ekki að meðtaka þau og treysti sér ekki til að dvelja áfram heima. Hún lýsir því að hafa einnig óttast um hestana í Mosfellsbæ og að óvissan um hver hefði komið níðstönginni fyrir hafi gert óttann enn meiri. Hún fór þess í stað í hesthús fjölskyldunnar í Mosfellsbæ.

Níðstöng er fornt tákn formælinga og niðurlægingar óvina, meðal annars þekkt úr Egils sögu.

Vísir greindi frá því sama dag að Kristjana hefði flúið heimilið og að hún óttaðist að snúa aftur.

Skilaboð sem breyttu öllu

Síðar þennan dag fékk Guðni Facebook-skilaboð frá einstaklingi sem kvaðst þekkja til þeirra sem reistu níðstöngina. Samkvæmt Kristjönu sagði viðkomandi að henni hefði alls ekki verið beint gegn fjölskyldunni, heldur gegn Sólsetrinu vegna meints ofbeldis sem hefði átt sér stað þar.

„Þarna gerum við okkur grein fyrir því að hlutirnir sem eru búnir að vera óþægilegir fyrir okkur hafa verið hryllilegir fyrir fullt og fullt af öðru fólki. Þarna erum við að átta okkur á því,“ segir Kristjana.

Hún segir sendandann ekki hafa verið nafnlausan gagnvart þeim, þótt hann hafi ekki viljað tengjast verknaðinum. Þeim hafi verið komið á framfæri afsökunarbeiðni vegna óttans sem níðstöngin olli, en Kristjana segist samt ekki hafa þorað heim strax.

Vísir greindi einnig frá þeirri skýringu árið 2022.

Ekki hefur komið fram hver eða hverjir reistu níðstöngina en Matvælastofnun taldi að hrossið hefði verið aflífað með mannúðlegum hætti. Kristjana segist hins vegar aldrei hafa fengið skýra mynd af því hvernig lögregla rannsakaði sjálfan verknaðinn eða hvort einhver hefði verið yfirheyrður vegna hans.

Frásagnir af meintu ofbeldi

Eftir níðstangarmálið kynntist Kristjana frásögnum fólks sem lýsti andlegu og kynferðislegu ofbeldi í tengslum við starfsemina. Í Kompási og hlaðvarpinu Eigin konur var fjallað um slíkar ásakanir, en Linda Mjöll hefur áður hafnað ásökunum um ofbeldi.

Hún segir að samkvæmt því sem hún hafi heyrt hafi sumir verið hvattir til að yfirstíga eigin mörk, jafnvel þegar þeir vildu ekki taka þátt í kynferðislegum athöfnum.

„Þá ertu bara að lifa í óttanum þínum eða þú ert að láta egóið þitt þvælast fyrir þér,“ segir hún og lýsir því sem hættulegri leið til að beita fólk þrýstingi.

Linda Mjöll býr enn á Skrauthólum og eru þær Kristjana því enn nágrannar, fjórum árum eftir að níðstöngin var reist. Samskipti þeirra hafa hins vegar legið niðri síðan atvikið átti sér stað og Kristjana segist ekki hafa rætt við nágrannakonuna síðan.

„Ég hef ekkert talað við hana síðan þetta gerðist,“ segir Kristjana. Aðspurð hvort þær hafi ekkert rætt saman á þessum tíma svarar hún: „Aldrei. Og ég ætla ekki að reyna það.“

Hún segir að ástandið hafi róast frá árinu 2022 og mun færri búi nú í útihúsunum en áður. Enn séu þó haldnir viðburðir og fjölskyldan hafi nýlega þurft að leita til lögreglu vegna atviks sem tengdist akstri á svæðinu. Þau hjónin hafi íhugað að flytja og gert tilboð í hús í Mosfellsbæ en því hafi verið hafnað.

Þau hafi einnig kært tjaldsvæðisleyfið sem starfsemi Sólsetursins sé rekin undir og óskað eftir að það verði fellt úr gildi. Kristjana segist ekki vilja ráða lífsstíl annarra, aðeins fá að njóta heimilisins sem fjölskyldan keypti í leit að ró og næði. Hún viðurkennir að hún óttist viðbrögð við því að stíga fram í þættinum en telji engu að síður mikilvægt að segja frá.

„Mér finnst bara mikilvægt að halda þessu máli á lofti og mér finnst mikilvægt að það gleymist ekki. Mér finnst okkar rödd alveg jafn mikilvæg.“

#breyttist #martröð #sveitadraumurinn #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262948861d/sveitadraumurinn-breyttist-i-mar-trod

📰 Aðrar fréttir

Ef þú finn­ur fyr­ir ein­kenn­um, hlust­aðu á lík­am­ann - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 0
Ef þú finn­ur fyr­ir ein­kenn­um, hlust­aðu á lík­am­ann - Vísir
„Þetta byrjaði þannig að ég var með slitinn liðþófa,“ segir Guðrún Ólöf Gunnarsdóttir, sem greindist með æxli á stærð við golfkúlu í hnénu í aðdragand...
Selma Soffía hafði ekki hugmynd um hvað beið hennar á Saga Class – „Gat ekki barist við gleðitárin“
📅 17.10.2026 👁️ 0
Selma Soffía hafði ekki hugmynd um hvað beið hennar á Saga Class – „Gat ekki barist við gleðitárin“
Áhrifavaldurinn og athafnakonan Selma Soffía Guðbrandsdóttir var kærasta þegar hún steig upp í flugvél á leið til Barcelona en unnusta þegar hún steig...
Flúði af vettvangi, skildi bílinn eftir en fjarlægði númerin
📅 17.10.2026 👁️ 0
Flúði af vettvangi, skildi bílinn eftir en fjarlægði númerin
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að eiga við að minnsta kosti þrjá bílstjóra sem lögðu á flótta í nótt.Einn ökumaður flúði af vettvangi eftir að ...
Drógu logandi vinnuvél úr álverinu í Straumsvík
📅 17.10.2026 👁️ 0
Drógu logandi vinnuvél úr álverinu í Straumsvík
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti flóknu verkefni í álverinu í Straumsvík í nótt þegar kviknaði í vinnuvél inni í álverinu. Draga þurfti vélina ú...
Stormasamt veður og viðvaranir víða
📅 17.10.2026 👁️ 0
Stormasamt veður og viðvaranir víða
Von er á hvassviðri og stormum á stórum hluta landsins í dag, sérstaklega á vestanverðu landinu. Gular viðvaranir eru í gildi víða frá og eftir hádegi...
Al­var­lega slösuð eftir skot­á­rás í í­þrótta­húsi - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 0
Al­var­lega slösuð eftir skot­á­rás í í­þrótta­húsi - Vísir
Konan, sem er á þrítugsaldri, var flutt með sjúkrabíl á sjúkrahús með áverka sem lögreglan lýsti sem „mjög alvarlegum“. Á laugardagsmorgun var ástand ...
Canary Islands to extend breast cancer screening to more women from 2027
📅 17.10.2026 👁️ 0
Canary Islands to extend breast cancer screening to more women from 2027
More women living in the Canary Islands will be offered routine breast screening from next year, as the regional health service begins widening the pr...
Frestar gildis­töku refsi­að­gerða gegn Rúss­landi - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 0
Frestar gildis­töku refsi­að­gerða gegn Rúss­landi - Vísir
Trump undirritaði sjálfur lögin í síðasta mánuði en ákvörðun hans nú kom aðeins tveimur dögum áður en frestur til að hrinda þeim í framkvæmd rann út s...
Boy and man die in light air craft crash near Loch Lomond
📅 17.10.2026 👁️ 0
Boy and man die in light air craft crash near Loch Lomond
Emergency services were called at about 16:45 on Friday, and pronounced both dead at the scene.
Tveir handteknir vegna skotárásar í Stokkhólmi
📅 17.10.2026 👁️ 1
Tveir handteknir vegna skotárásar í Stokkhólmi
Tveir ungir menn hafa verið handteknir í Svíþjóð grunaðir um skotárás við íþróttahöll í Stokkhólmi í gærkvöldi. 25 ára kona liggur þungt haldin á sjúk...
Eldur í lyftara í ál­verinu í Straumvík - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Eldur í lyftara í ál­verinu í Straumvík - Vísir
Samkvæmt tilkynningu fóru tveir dælubílar á vettvang en það tók um tvo tíma að klára verkefnið vegna þess hve snúið það var. Ekki má nota vatn inni í ...
Stormur með tals­verðri rigningu síð­degis í dag - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 0
Stormur með tals­verðri rigningu síð­degis í dag - Vísir
Á norðanverðu Snæfellsnesi er spáð sunnan roki og mjög snörpum vindhviðum, en slíkir vindar geta valdið foktjóni. Því hefur verið gefin út appelsínugu...
Tveir reyndu að flýja lög­reglu á fótum eftir eftir­för - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Tveir reyndu að flýja lög­reglu á fótum eftir eftir­för - Vísir
Einn ungur ökumaður var stöðvaður af lögreglu á Suðurlandsvegi eftir að hafa verið mældur á 151 kílómetra hraða en hámarkshraði þar sem hann var stöðv...
„Margt sem ég hef séð situr í mér“
📅 17.10.2026 👁️ 1
„Margt sem ég hef séð situr í mér“
„Margt sem ég hef séð situr í mér“ Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að kon...
Trump dregur enn frekar úr viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi
📅 17.10.2026 👁️ 0
Trump dregur enn frekar úr viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi
Donald Trump Bandaríkjaforseti skrifaði undir forsetatilskipun í gær sem felldi úr gildi viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna gegn Rússlandi.Þær beindust ...
Drukku brjósta­mjólk á brúð­kaups­daginn - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 2
Drukku brjósta­mjólk á brúð­kaups­daginn - Vísir
Hjónin kynntust í Verzló árið 2016, þegar Kolbrún var busi og Arnór á þriðja ári. Þau eru miklir stuðboltar sem eru umkringt fjörugu fólki en Arnór ræ...
Óttar Guðmundsson skrifar: Þingmenn fara í bað
📅 17.10.2026 👁️ 1
Óttar Guðmundsson skrifar: Þingmenn fara í bað
Mynd Víða í Íslendingasögum er sagt frá örlagaríkum ferðum í
Tímamótakosningar í Serbíu: Stúdentar skora forsetann á hólm
📅 17.10.2026 👁️ 0
Tímamótakosningar í Serbíu: Stúdentar skora forsetann á hólm
„Þetta verður síðasta tækifærið til þess að leiða landið aftur á braut lýðræðis“, segir Mladen Zivanovic, viðmælandi Heimskviða, um komandi þingkosnin...
Greiningum barna fjölgaði um 58% í Reykjavík – umönnunargreiðslur tvöfölduðust hjá TR
📅 17.10.2026 👁️ 0
Greiningum barna fjölgaði um 58% í Reykjavík – umönnunargreiðslur tvöfölduðust hjá TR
Börnum sem fóru í greiningu hjá skólaþjónustu Reykjavíkur fjölgaði um 58% frá 2013 til 2024, meðan börnum í borginni fjölgaði aðeins um 4%. Á landsvís...
24-year-old man seriously injured in buggy accident in southern Gran Canaria
📅 17.10.2026 👁️ 0
24-year-old man seriously injured in buggy accident in southern Gran Canaria
A 24-year-old man was airlifted to hospital with serious injuries after falling from a buggy in southern Gran Canaria yesterday afternoon (Friday).The...
SATURDAY WEATHER: Sunny spells as temperatures ease across the Canary Islands
📅 17.10.2026 👁️ 0
SATURDAY WEATHER: Sunny spells as temperatures ease across the Canary Islands
The Canary Islands will have a mix of sunshine and cloud this Saturday, 17th October, with temperatures dropping towards the average for this time of ...
Frétta­tía vikunnar: Mis­tök, of­læti og vél­menni - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Frétta­tía vikunnar: Mis­tök, of­læti og vél­menni - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Kínverskir bílar tóku myndbönd af æfingum norska hersins
📅 17.10.2026 👁️ 1
Kínverskir bílar tóku myndbönd af æfingum norska hersins
Norski herinn hefur komist að því að bílar frá Kína hafi safnað viðkvæmum upplýsingum um starfsemi hans.Meðal þess sem bílarnir skráðu og geymdu voru ...
Glæsihýsi brenna í gróðureldum við Los Angeles
📅 17.10.2026 👁️ 1
Glæsihýsi brenna í gróðureldum við Los Angeles
Glæsihýsi sem metin eru á milljónir bandaríkjadala urðu gróðureldum að bráð sunnan við Los Angeles í gær.Eldarnir hafa sviðið tæpa 190 hektara á skömm...
Expansion of Heathrow Airport would drive growth, chancellor Healey says
📅 17.10.2026 👁️ 1
Expansion of Heathrow Airport would drive growth, chancellor Healey says
It comes after the prime minister refused to say whether he backed expansion.
Óvíst hvað varð um 85 milljarða sem ráðstafa átti til viðbragðs við ebólufaraldri
📅 17.10.2026 👁️ 1
Óvíst hvað varð um 85 milljarða sem ráðstafa átti til viðbragðs við ebólufaraldri
Sóttvarnarstofnun Afríku segir óvíst hvert fé sem ráðstafa átti til viðbragða við ebólufaraldrinum hafa ratað. Upphæðin hleypur á 700 milljónum dala, ...
Three men jailed for 158 years each for murdering Australian brothers and US friend in Mexico
📅 17.10.2026 👁️ 1
Three men jailed for 158 years each for murdering Australian brothers and US friend in Mexico
Brothers Jake and Callum Robinson and their friend Carter Rhoad were killed on a surfing trip in an apparent botched robbery.
Eyðing Amazon-frumskógarins í Brasilíu ekki minni í 40 ár
📅 17.10.2026 👁️ 1
Eyðing Amazon-frumskógarins í Brasilíu ekki minni í 40 ár
Skýrsla var gefin út í gær sem sýnir fram á að eyðing regnskógarins í Brasilíu hefur ekki verið minni í fjóra áratugi.Niðurstöður skýrslunnar þykja já...
Trump waives several Russian sanctions as new US law takes effect
📅 17.10.2026 👁️ 1
Trump waives several Russian sanctions as new US law takes effect
Trump says parts of a new law that aims to punish Moscow for its war against Ukraine are against US national interests.
Trump waives several Russia sanctions as row with Zelensky intensifies
📅 17.10.2026 👁️ 0
Trump waives several Russia sanctions as row with Zelensky intensifies
The US president temporarily ends many restrictions on Moscow recently passed by Congress over "national security" concerns.
Faisal Islam: What I learned from a week with the world's top finance leaders
📅 17.10.2026 👁️ 3
Faisal Islam: What I learned from a week with the world's top finance leaders
At the IMF meeting in Bangkok this week finance and business leaders grappled with uncertainty.
Faisal Islam: Why China and AI are worrying global finance bosses
📅 17.10.2026 👁️ 0
Faisal Islam: Why China and AI are worrying global finance bosses
At the IMF meeting in Bangkok this week finance and business leaders grappled with uncertainty.
25 ára kona alvarlega særð eftir að skotum var hleypt af í íþróttahöll í Stokkhólmi
📅 17.10.2026 👁️ 3
25 ára kona alvarlega særð eftir að skotum var hleypt af í íþróttahöll í Stokkhólmi
25 ára gömul kona er alvarlega særð eftir að skotum var hleypt af í íþróttahöll í Älvsjö í Suður-Stokkhólmi um níuleytið að staðartíma í gærkvöldi.Íþr...
Miranda's tears, joy and dance moves steal show as celebrities battle deadly boredom on The Traitors
📅 17.10.2026 👁️ 3
Miranda's tears, joy and dance moves steal show as celebrities battle deadly boredom on The Traitors
Miranda Hart became emotional and spoke about her health problems as more action unfolded on Friday.
Börn með sérþarfir voru fórnarlömb skotárásar í Silver Rail-skólanum
📅 17.10.2026 👁️ 3
Börn með sérþarfir voru fórnarlömb skotárásar í Silver Rail-skólanum
Fórnarlömb árásarmannsins sem hóf skotárás í Silver Rail-grunnskólanum í Oregon í gær voru börn með sérþarfir. Árásarmaðurinn var sextán ára drengur o...
Faðir tveggja nem­enda í skólanum sá sem skaut á­rásar­manninn - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 5
Faðir tveggja nem­enda í skólanum sá sem skaut á­rásar­manninn - Vísir
Hin fimm ára Rhoam Summer og hin 25 ára Meghan Lambert, kennari við skólann, létust í árásinni sem átti sér stað í gær, fimmtudaginn 15. október, í Si...
Trump 'completely wrong' to restrict support for Ukraine, Italian minister tells BBC
📅 16.10.2026 👁️ 1
Trump 'completely wrong' to restrict support for Ukraine, Italian minister tells BBC
Defence Minister Guido Crosetto tells the BBC the US risks prolonging Russia's full-scale invasion rather than helping to end it.
Vaping: Why people who have never smoked are getting hooked
📅 16.10.2026 👁️ 1
Vaping: Why people who have never smoked are getting hooked
More than one million people now vape who have never been smokers, according to the ONS.
Halloween costumes 2026: From Obsession to Odyssey, the top TV, film and pop culture party outfits
📅 16.10.2026 👁️ 0
Halloween costumes 2026: From Obsession to Odyssey, the top TV, film and pop culture party outfits
Freaky Nikki, Dolly Parton and whimsical costumes like gargoyles are popular among adults dressing up this year.
Oregon teacher fought school attacker before armed dad killed suspect
📅 16.10.2026 👁️ 5
Oregon teacher fought school attacker before armed dad killed suspect
The 16-year-old suspect previously attended the primary school and had targeted a special educational needs classroom, police say.
Swinney insists 'stars are aligning' for Scottish independence
📅 16.10.2026 👁️ 0
Swinney insists 'stars are aligning' for Scottish independence
The first minister will tell delegates at the SNP conference in Aberdeen that 2026 has been a turning point in Scotland's "journey to nationhood".
Trump-stjórnin hyggst lána 17 milljónir olíutunna úr neyðarbirgðum – olíuverð nálgast 110 dali
📅 16.10.2026 👁️ 1
Trump-stjórnin hyggst lána 17 milljónir olíutunna úr neyðarbirgðum – olíuverð nálgast 110 dali
Trump-stjórnin hyggst lána 17 milljónir olíutunna úr neyðarbirgðum – olíuverð nálgast 110 dali Fréttin16. október 2026Erlent, TrumpLeave a Comment Ban...
Varaði við nýju Rúss­landi Pútíns - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 5
Varaði við nýju Rúss­landi Pútíns - Vísir
Trump gerði nýlega samkomulag við Vladimír Pútín um kaup á díselolíu og felldi niður refsiaðgerðir á rússneska díselolíu en Selenskí sagðist ekki geta...
Ferðamenn segja frá vonbrigðum sínum á Íslandi – „Ég myndi líklega ekki gera það aftur“
📅 16.10.2026 👁️ 5
Ferðamenn segja frá vonbrigðum sínum á Íslandi – „Ég myndi líklega ekki gera það aftur“
Íslenskar pylsur, þekktir ferðamannastaðir og sundlaug úti í náttúrunni eru meðal þess sem olli erlendum ferðamönnum vonbrigðum í heimsókn þeirra til ...
Ást­vinir þeirra sem létust í flug­slysinu bíða enn - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 5
Ást­vinir þeirra sem létust í flug­slysinu bíða enn - Vísir
Er þetta meðal þess sem kemur fram í umfjöllun fréttaveitunnar Reuters um málið en þar segir einnig að fjölskyldur ​farþeganna bíði óþreyjufullar svar...
Neitar að hafa takmarkað aðgang Úkraínu að Starshield
📅 16.10.2026 👁️ 5
Neitar að hafa takmarkað aðgang Úkraínu að Starshield
Donald Trump Bandaríkjaforseti þvertekur fyrir að hafa takmarkað aðgang Úkraínu að Starshield-kerfinu, sérstakri útgáfu af Starlink-gervihnattaþjónust...
Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
📅 16.10.2026 👁️ 1
Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg Maðurinn rétt fyrir handtökunaMaðurinn virtist hafa verið í miklu ójafnvægi Mynd: ...
„Fylgjumst grannt með fram­vindu mála“ - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 5
„Fylgjumst grannt með fram­vindu mála“ - Vísir
„Við erum hérna fleiri að halda upp á afmælið og erum að fylgjast með böndunum,“ segir Björn Hjaltason skordýraáhugamaður í samtali við blaðamann Vísi...
Zacharia was thrown into a whirlwind - and failed at a critical time for Trump
📅 16.10.2026 👁️ 4
Zacharia was thrown into a whirlwind - and failed at a critical time for Trump
The White House is facing growing adversity, writes the BBC's Anthony Zurcher, weeks before crucial midterm elections.
Katie Zacharia was thrown into a whirlwind - and failed at a critical time for Trump
📅 16.10.2026 👁️ 0
Katie Zacharia was thrown into a whirlwind - and failed at a critical time for Trump
The White House is facing growing adversity, writes the BBC's Anthony Zurcher, weeks before crucial midterm elections.