Er þetta meðal þess sem kemur fram í umfjöllun fréttaveitunnar Reuters um málið en þar segir einnig að fjölskyldur farþeganna bíði óþreyjufullar svara frá yfirvöldum. Bola Tinubu forseti Nígeríu hafi fyrirskipað rannsókn á flugslysinu, þann 5. október, en ættingjar hafi fengið litlar upplýsingar um orsök þess, hvort líkamsleifar hafi verið auðkenndar eða hvernig björgunarstarfinu miði áfram.
Var að íhuga rútuferð frekar
Þá á vélin að hafa verið á leið frá Benínborg til Lagos þegar hún, samkvæmt upplýsingum frá nígeríska flughernum, fórst á afskekktu svæði í suðvesturhluta Nígeríu eftir að ratsjársamband rofnaði.
Fréttaritari Reuters náði tali af hugbúnaðarforritara í London, Victor Anii, en hann segir óvissuna hafa aukið á sorgina yfir missi eldri systur hans, Esther Anii, liðþjálfa í nígeríska flughernum.
Þegar hann hafi vaknað þann 5. október hafi beðið hans skilaboð frá henni þar sem hún hafi beðið hann að senda sér pening fyrir rútuferð. Hún hafi sagt honum að hópurinn hefði þurft að gera hlé á ferðalagi sínu í Benínborg vegna bilunar í flugvél. Hún var orðin þreytt á biðinni og íhugaði að halda ferðinni áfram landleiðina.
Nokkrum klukkustundum síðar hafi Anii borist fréttir af því að flugvél flughersins sem flaug á milli borganna tveggja, sömu og systir hans þurfti að komast á milli, hefði farist.
„Dugar ekki til“
„Við vissum ekki hvað var í gangi. Við vissum bara að við náðum ekki í hana og eiginmaður hennar náði ekki í suma vini sína sem voru um borð,“ sagði Anii við Reuters.
Það hafi svo ekki verið fyrr en daginn eftir, þegar flugherinn hafi birt lista yfir þá sem voru um borð, að fjölskyldan hafi komist að því að Esther hefði verið á meðal hinna látnu. Anii, sem hafi verið að eigin sögn verulega ósáttur við það sem hann taldi slæma upplýsingagjöf yfirvalda, hafi birt myndband á netinu þar sem hann gagnrýndi framkomu flughersins við fjölskyldurnar eftir slysið.
Tveimur dögum síðar, að hans sögn, heimsótti yfirmaður í flughernum heimili foreldra hans í Abuja með tvö umslög. Í öðru var samúðarbréf. Fjölskyldan opnaði ekki hitt umslagið því hana grunaði að í því væru peningar.
„Hvað sem er í því dugar ekki til að taka sársaukann frá fjölskyldu minni,“ sagði hann.