„Þetta byrjaði þannig að ég var með slitinn liðþófa,“ segir Guðrún Ólöf Gunnarsdóttir, sem greindist með æxli á stærð við golfkúlu í hnénu í aðdraganda aðgerðar. Í eftirskoðun í september sáust engin ummerki um meinvörp, en um áramótin fann Guðrún Ólöf að eitthvað var ekki eins og það átti að vera. „Þá er ég farin að finna fyrir verkjum í baki, mjóbaki, mjöðm, nára og tám.“
Guðrún Ólöf fór til læknis í júní og fékk þá þær fréttir að krabbameinið væri búið að dreifa sér um fótinn. „Ég hlustaði ekki á líkamann og fór aðeins of seint,“ segir hún. Í kjölfarið þurfti hún að fara í aflimun og var fóturinn tekinn af fyrir ofan hné.
Finnur eitthvað jákvætt á hverjum einasta degi
Eftir aðgerðina tileinkaði hún sér að taka einn dag í einu og reyndi að hafa eitthvað fyrir stafni á hverjum degi. „Að finna alltaf eitthvað jákvætt.“ Hún vill einnig hvetja fólk til að hlusta á líkamann. „Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann, ekki hunsa það. Alveg sama hversu lítið eða mikið, hlustaðu á líkamann.“
- Hægt er að fá símaráðgjöf í síma 800 4040 mánudaga til fimmtudaga kl. 9-16 og á föstudögum kl. 9-14.
- Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á radgjof@krabb.is .
- Kíktu við í Skógarhlíð 8 (Reykjavík) eða Glerárgötu 24 (Akureyri) og fáðu nánari upplýsingar um starfsemina.
-
krabb.is