Báðir tveir, hinn bandaríski Cage og hinn spænski Banderas, hafa mátað sig við hlutverk í þáttunum síðasta árið eða svo og hafði Cage nánast greint frá því sjálfur að hann yrði með í næstu þáttaröð. Þá sagðist hann vera orðinn þreyttur á því að leika í kvikmyndum trekk í trekk.
„Þannig að ég held að ég taki líklega að mér aðra sjónvarpsþáttaröð. Ég held að ég gæti gert eina þáttaröð af True Detective. Það er í lagi að ég sé fyrstur til að tilkynna það, er það ekki?“
Þessi orð lét hann falla þegar hann lét sjá sig á Comic Con-hátíðinni í New York á dögunum. Greint hefur verið frá því að hann fari með hlutverk Henry Logan en að Banderas muni leika persónu að nafni Rai Garcia, er fram kemur í frétt Hollywood Reporter en þar segir einnig að framleiðslufyrirtækin haldi spilunum ansi þétt að sér og lítið sé annars vitað um þáttaröðina.
Leikararnir hafa báðir tveir verið önnum kafnir undanfarið en Cage lauk nýverið við tökur á kvikmyndinni Madden þar sem hann fer með hlutverk John Madden, NFL-þjálfara, íþróttalýsanda og frumkvöðuls á sviði tölvuleikja. Þá lék Banderas í kvikmyndinni Tony sem var frumsýnd í sumar en hún er heimildarmynd um bandaríska matreiðslumanninn og rithöfundinn Anthony Bourdain.
Líkt og fyrr segir var síðasta þáttaröð að mestu leyti tekin upp á Dalvík en þar fór stórleikkonan Jodie Foster með aðalhlutverkið, rannsóknarlögreglukonuna Liz Danvers. Dalvík var við tökurnar sett í gervi lítils bæjar í Alaska-ríki Bandaríkjanna.
Þá fóru einnig tökur fram á Vogum á Vatnsleysuströnd en meðal þess sem gera þurfti í undirbúningi fyrir tökurnar var að breyta ásýnd Voga og skipta þurfti út miklum fjölda skilta í bænum og við sveitabæi á Vatnsleysuströnd. Skilti voru sett upp sem vara við dýralífi Alaska, elgum og hreindýrum, og umferðarskiltum var breytt.