Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að eiga við að minnsta kosti þrjá bílstjóra sem lögðu á flótta í nótt.
Einn ökumaður flúði af vettvangi eftir að hafa valdið tjóni í Hafnarfirði. Lögregla leitaði að bifreiðinni en þegar hún fannst í Garðabæ var ökumaðurinn á bak og burt og hafði fjarlægt númerin af bílnum. Málið er í rannsókn hjá lögreglu.
Flúðu fyrst á bíl og tóku svo til fótanna
Ökumaður í Kópavogi brást ekki við þegar lögregla gaf honum stöðvunarmerki. Upphófst eftirför þar sem bílstjórinn ók langt yfir hámarkshraða og yfir á rauðu ljósi. Þegar hann stöðvaði bílinn reyndi hann að stinga lögregluna af á tveimur jafnfljótum en var á endanum yfirbugaður. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum og dreifingu fíkniefna.
Enn einn ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu í Fossvoginum og tók á sprett eftir að hafa stöðvað bílinn en lögreglan var fljót að hlaupa hann uppi og handtaka. Bílstjórinn er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.
Átta aðrir ökumenn voru handteknir grunaðir um að aka undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.