Tímamótakosningar í Serbíu: Stúdentar skora forsetann á hólm

Tímamótakosningar í Serbíu: Stúdentar skora forsetann á hólm

Tímamótakosningar í Serbíu: Stúdentar skora forsetann á hólm

„Þetta verður síðasta tækifærið til þess að leiða landið aftur á braut lýðræðis“, segir Mladen Zivanovic, viðmælandi Heimskviða, um komandi þingkosningar í Serbíu. Kosningunum er lýst sem þjóðaratkvæðagreiðslu milli mannsins sem nýverið sagði af sér sem forseti og vill núna verða forsætisráðherra og svo fjöldahreyfingar stúdenta sem hefur teflt fram sínum lista.

Eftir harmleikinn í borginni Novi Sad þann fyrsta nóvember 2024 burtust út mikil mótmæli. Þá létust 16 manns þegar þak á útisvæði við aðallestarstöðina í borginni hrundi. Sextán fórust, yngstu fórnarlömbin voru systurnar Sara, sex ára, og Valentina, tíu ára. Þær biðu með afa sínum eftir lest.

Mótmælin sem fylgdu eru þau mestu í sögu landsins. Í marga mánuði kom fólk saman um land allt, stundum hundruð þúsunda í einu.

Mótmælendur skelltu skuldinni á kerfislæga spillingu og skort á sérfræðieftirliti. Það var nýbúið að gera lestarstöðina upp, endurbæturnar voru styrktar af kínverska þróunarverkefninu Belti og braut.

Það varð ljóst frekar fljótt að mótmælin sneru í raun að stjórnvöldum og kerfinu, hvort það væri yfirhöfuð mögulegt að draga einhvern raunverulega til ábyrgðar.

„Við höfum beðið eftir þessum þingkosningum í tvö ár. Spillingin í Serbíu hefur náð hættulegum hæðum,“ segir Mladen Zivanovic. Mladen er stærðfræðikennari og einn þeirra sem reyndu að fá að koma upp kjörstað hér fyrir Serba búsetta á Íslandi. Meira um það síðar.

Tók sinn tíma að ná fram kosningum

Mótmælendur kröfðust kosninga en það tók sinn tíma að ná þeim fram. Í janúar 2025 tilkynnti forsætisráðherrann, og bandamaður Aleksandar Vučić forseta, afsögn sína.

Áfram héldu mótmælin af miklum krafti og það var ekki fyrr en 8. september á þessu ári sem Vučić forseti tilkynnti að hann ætlaði að rjúfa þing og boða til kosninga. Rúmum tveimur vikum síðar, eða 27. september, kom svo önnur tilkynning.

„Aleksandar Vučić, forseti Serbíu, hefur sagt af sér. Afsögnin kemur sjö mánuðum áður en fimm ára kjörtímabili hans átti að ljúka, en hann hefur gegnt embætti forseta frá 2017.“

Stuðningsfólk forsetans þurfti þó ekki að örvænta því viku síðar tilkynnti Vučić að hann hygðist bjóða sig fram í þingkosningunum og ekki nóg með það, hann væri líka forsætisráðherraefni flokksins. Embætti sem hann þekkir vel enda var hann forsætisráðherra 2014 til 2017.

Flokkur hans, Serbneski framfaraflokkurinn, oftast kallaður skammstöfuninni SNS, hefur verið við völd frá 2012. Sem sagt Vučić var við það að klára sitt annað kjörtímabil sem forseti og mátti ekki bjóða sig fram í það embætti aftur samkvæmt stjórnarskrá. Núna vill hann verða forsætisráðherra aftur.

Löng og flókin saga þjóðar

Serbía og Serbar eiga sér langa og flókna sögu sem verður ekki farið yfir í þessum pistli en hér koma örfáar staðreyndir. Um sex og hálf milljón býr í Serbíu. Höfuðborgin er Belgrad og opinbert tungumál er serbneska.

Serbía er landlukt og á landamæri að nokkuð mörgum ríkjum: Ungverjalandi í norðri, Rúmeníu og Búlgaríu í austri, Norður-Makedóníu, Svartfjallalandi, Bosníu og Hersegóvínu og Króatíu í vestri og Albaníu í suðri - það er, ef þú spyrð serbnesk stjórnvöld. Serbía viðurkennir nefnilega ekki sjálfstæði Kósóvó, sem liggur upp við Albaníu, en Kósovó lýsti einhliða yfir sjálfstæði frá Serbíu 2008.

Serbía var áður hluti af Júgóslavíu, eða landi Suður-Slavana, sem varð til eftir fyrri heimsstyrjöld. Júgóslavía var stofnuð sem konungdæmi 1. desember 1918, sama dag og Ísland varð fullvalda. Í apríl 1941, þegar seinni heimsstyrjöldin geisaði, réðust öxulveldin inn í Serbíu. Fremst í flokki þar voru Þýskaland, Ítalía og Japan þótt önnur smærri ríki teljist einnig til öxulvelda.

Júgóslavía leysist upp

Öxulveldin skiptu Júgóslavíu á milli sín og frömdu þar voðaverk og stríðsglæpi. Talið er að um ein milljón manna hafi verið drepin. Leiðtogi júgóslavnesku andspyrnuhreyfingarinnar Josip Broz Tito er talinn einn sá atkvæðamesti á þeim tíma í hernumdu landi og það var hann sem varð forsætisráðherra sósíalíska sambandslýðveldisins Júgóslavíu eftir stríð.

Eins og þið kannski heyrið, kæru hlustendur, væri hægt að gera heila þáttaröð um sögu Serbíu en við ætlum að fara að koma okkur aftur í nútímann. Júgóslavía leystist upp á afar blóðugan hátt. Röð mannskæðra átaka og mikil eyðilegging varð en loks voru gerðir friðarsamningar sem flestir fólu í sér viðurkenningu á sjálfstæði ríkjanna sem mynduðu Júgóslavíu. Auk Serbíu eru það: Bosnía og Hersegóvína, Króatía, Norður-Makedónía (sem áður hét bara Makedónía), Svartfjallaland og Slóvenía. Og svo auðvitað Kosóvó sem lýsti yfir sjálfstæði 2008 eins og þið munið.

En af hverju eru þessar kosningar svona mikilvægar? Við fengum Mladen Zivanovic stærðfræðikennara, sem þið heyrðuð í áðan, og Milos Petrovic dósent í íþróttafræðum til þess að útskýra það fyrir okkur. Þeir eru báðir frá Serbíu en hafa búið á Íslandi lengi, Mladen í tíu ár og Milos sjö ár. Báðir voru þeir í hópi Serba á Íslandi sem vildu koma hér upp kjörstað. Hvernig gekk það?

Mladen segir að stúdentahreyfingin í Serbíu hafi fyrst haft samband fyrir hálfu ári. Hann og fleiri hafi þá farið af stað að skoða hvaða skilyrði þyrfti að uppfylla. Samkvæmt lögum þurfa hundrað eða fleiri kjósendur að óska eftir því, finna þarf hentugan kjörstað og ekki má hætta steðja að kjósendum. Veitt eru leyfi fyrir kjörstöðum erlendis, sérstaklega ef það er erfitt að komast á næsta kjörstað, í tilfelli Serba á Íslandi þarf að fara í sendiráðið í Osló.

„Við getum flogið til Osló en það er mjög dýrt,“ segir Mladen. Honum þykir staða Serba á Íslandi vera ljóslifandi dæmi um það hvers vegna þetta ákvæði um kjörfund erlendis er yfirhöfuð í lögum.

Svarið var nei

Milos segir þau hafa fylgt lögum og reglum og spilað leikinn rétt. Svo kom svarið frá serbneskum yfirvöldum og það var nei. Þeir segja svarið ekki hafa verið rökstutt neitt frekar en hafa sínar kenningar.

Milos segir þau ekki hafa farið leynt með skoðanir sínar, stjórnvöld viti að þau styðji stúdentahreyfinguna sem reynir að koma stjórnvöldum frá. Þótt nokkur hundruð atkvæði á Íslandi breyti ekki niðurstöðunni þá sendi það skýr skilaboð. Milos segir fleiri Serba sem búa erlendis hafa lent í því sama, fá neitun um að opna kjörstað og þurfa að ferðast langa leið til að kjósa.

Annað varðandi kosningar erlendis sem hefur vakið mikla athygli og verið gagnrýnt er að reglunum um kjörfundi erlendis var breytt, bara núna í október, þannig að þeir verða að vera á sama tíma og í Serbíu, alveg sama hvar í heiminum þeir eru. Það þýðir að sums staðar verður kjörfundur um miðja nótt.

Stúdentahreyfingin sem stóð fyrir mótmælaöldunni eftir Novi Sad-harmleikinn hefur einbeitt sér að öðru en skipulagningu mótmæla síðustu mánuði. Hún hefur sett saman lista af sérfræðingum í hinum ýmsu málum sem býður fram 25. október.

Þar sem flestir fjölmiðlar eru undir hælnum á stjórnvöldum hafa þau notað samfélagsmiðla og bara farið hús úr húsi til að kynna listann. Sá sem leiðir listann heitir Ilija Srdanović, læknir á sextugsaldri og prófessor við Novi Sad-háskóla. Hann hefur tileinkað sér einkunnarorðin Serbía eða mafían og á þar við að ríkjandi stjórnvöld hagi sér eins og mafía.

Srdanović hefur hjólað um landið með fleirum úr hreyfingunni til að kynna stefnumálin sem snúa aðallega að því að uppræta spillingu. Honum var boðið að mæta Vučić í kappræðum en afþakkaði. Hann sagði boðið koma 15 árum of seint og vísar þar í að það hafi lítið farið fyrir lýðræðislegri umræðu í fjölmiðlum.

Mladen sér þessar kosningar sem eina tækifærið til þess að snúa Serbíu aftur á braut lýðræðis og að raddir fólksins fái aftur að heyrast. Þetta eru stór orð en hann er ekki einn á þessari skoðun.

Ítrekaðar ásakanir um kosningasvindl

Í bráðabirgðaskýrslu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE, sem sér um kosningaeftirlit, kemur fram að ásakanir um kosningasvindl, mótmæli og ofbeldi hafi einkennt síðustu þingkosningar árið 2023 og tillögur sem stofnunin setti fram til úrbóta hafi verið hunsaðar.

Þá séu aftur uppi áhyggjur af ónákvæmum kjörskrám og fyrirkomulagi kosninga utan landsteinanna. Þegar hefur verið bent á misræmi í kjörskrá og fjölda íbúa í landinu fyrir þessar kosningar.

Samkvæmt opinberum tölum eru ríflega 6,4 milljónir á kjörskrá fyrir kosningarnar - þetta var gert opinbert 9. október. Það er fjöldi þeirra sem hafa sérstaklega skráð sig til þess að kjósa. Það búa samt bara 6,5 milljónir í Serbíu og varla eru börn á kjörskrá. Það eru því kannski um milljón fleiri á kjörskrá en fullorðnir sem búa í landinu. Yfirvöld segja misræmið skýrast af því að milljónir Serba búi í öðrum löndum en hafi samt kosningarétt.

En samkvæmt opinberum tölum hafa samt aðeins um 100 þúsund skráð sig til að kjósa erlendis. Þetta vekur upp áhyggjur um að svokallaðir draugakjósendur séu skráðir til leiks, fólk sem er flutt úr landi eða jafnvel látið.

Hvað er búlgarska lestin?

En talandi um svindl, hafið þið heyrt um búlgörsku lestina? Ég hafði ekki heyrt um hana fyrr en Milos sagði mér frá henni. Þá fær kjósandi afhentan kjörseðil sem búið er að fylla út og mætir með hann á kjörstað. Hann fer svo inn og fær auðan kjörseðil, stingur honum í vasann en skilar þeim sem hann fékk útfylltan kjörkassann. Svindlararnir fá svo auða seðilinn og eru þá komnir með annan óútfylltan sem þeir fylla út og afhenda svo næsta. Þannig er hægt að kaupa atkvæði, bókstaflega. Þetta var víst mikið notað í kosningum til Evrópuþings í Búlgaríu árið 2009 og þaðan kemur nafnið.

Milos fullyrðir að þetta viðhafist í Serbíu og það gera fleiri, í kosningum síðustu ára hafa svona tilvik verið tilkynnt. Hann segir að fólki sé líka borgað fyrir ef það tekur mynd af atkvæðinu með skilríki sín við hliðina á kjörseðlinum.

Mladen segir að auglýsingar stjórnarandstöðuflokka séu ekki einu sinni sýndar í sjónvarpinu. Fólk sem aðallega sæki fréttir og upplýsingar í sjónvarpi sjái ekki aðra kosti, bara stjórnvöld og heyri stjórnvöld tala illa um þá sem eru þeim ekki sammála.

Hann segist hafa rætt við vini sína í Serbíu um að nú sé ekki tími fyrir neinn aktívis ma, öll orka þurfi að fara í kosningarnar. Hann er sannfærður um að ef ekki takist að ná fram breytingum í þessum kosningum geri stjórnvöld út af við tjáningarfrelsið í eitt skipti fyrir öll.

Dejan Pavlovic, stjórnmálaskýrandi og prófessor í Belgrad, segir við AP að það hvernig Vučić stjórni landinu sé skólabókardæmi um einræðisherra. Hann vilji stjórna fjölmiðlum, dómstólum og stofnunum.

Stuðningsfólk segir ekkert hæft slíkum ásökunum. Mótmælendur reyni bara að skapa glundroða. Vučić nýtur meiri stuðnings í dreifbýli og efnahagurinn hefur vissulega rétt úr kútnum. Serbía er ekki í ESB en er umsóknarríki. Umsóknarferlið hefur tafist vegna gruns um aðför stjórnvalda að lýðræði og dómstólum.

SNS, flokkur Vučić, fékk 47 prósent atkvæða í síðustu þingkosningum sem tryggði honum meirihluta á þingi. Bandalag miðju- og vinstriflokka var næststærst með töluvert minna fylgi eða 23 prósent. Þá var Vučić ekki sjálfur í framboði, enda var hann forseti landsins, en var samt andlit flokksins í kosningabaráttunni. Samkvæmt skoðanakönnun hélt einn af hverjum fjórum kjósendum að hann væri í framboði.

Vinsæll þjóðernissinni

Vinsældir hans og flokksins skýrast af ýmsu. Um tíu prósent þjóðarinnar eru skráð í flokkinn og fyrir það getur fólk fengið aðgang að opinberum störfum eða jafnvel peningagreiðslur. Vučić er líka þjóðernissinni og það höfðar til einhverra kjósenda. Hann er til dæmis fastur á því að Kosóvó sé og eigi að vera hluti af Serbíu.

Greinendur segja að það stefni í frekar jafnar kosningar og líkja þeim við þjóðaratkvæðagreiðslu milli Vučić og stúdentahreyfingarinnar. Það er ekkert launungarmál að Milos og Mladen vilja breytingar en eru þeir bjartsýnir?

Milos er sjálfur kennari við HÍ og segist trúa á unga fólkið, gagnrýna hugsun og menntunina sem það hafi unnið hart að. Hann hefur trú á því að þótt það verði ekki breytingar núna sé allt á réttri leið. Stúdentarnir finni sér leið rétt eins og vatnið.

Mladen segist örlítið hræddur við niðurstöðuna en segist hafa gert sitt besta til að leggja lóð á vogarskálarnar. Stúdentahreyfingin í Serbíu hafi sýnt fádæma hugrekki og sé afar skipulögð. Hún setji fram skýrar hugmyndir, ekki bara loforð. Hann segir stúdentahreyfinguna tilbúna að axla ábyrgð. Hún sé raunsæ og hafi fengið sérfræðinga til liðs við sig. Þrátt fyrir smá hræðslu er hann viss um að Serbía sé á réttri leið.

Hvernig þetta fer svo allt saman kemur í ljós næstu helgi. Kosningarnar sjálfar eru sunnudaginn 25. október og búist er við fyrstu niðurstöðum og útgönguspám fljótlega eftir að kjörstöðum verður lokað. Myndin gæti því farið að skýrast strax um kvöldið þótt það taki yfirleitt nokkra daga að birta endanlegar niðurstöður.

#forsetann #serbíu #skora #stúdentar #tímamótakosningar


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-10-17-timamotakosningar-i-serbiu-studentar-skora-forsetann-a-holm-490161

📰 Aðrar fréttir

Ef þú finn­ur fyr­ir ein­kenn­um, hlust­aðu á lík­am­ann - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 0
Ef þú finn­ur fyr­ir ein­kenn­um, hlust­aðu á lík­am­ann - Vísir
„Þetta byrjaði þannig að ég var með slitinn liðþófa,“ segir Guðrún Ólöf Gunnarsdóttir, sem greindist með æxli á stærð við golfkúlu í hnénu í aðdragand...
Selma Soffía hafði ekki hugmynd um hvað beið hennar á Saga Class – „Gat ekki barist við gleðitárin“
📅 17.10.2026 👁️ 0
Selma Soffía hafði ekki hugmynd um hvað beið hennar á Saga Class – „Gat ekki barist við gleðitárin“
Áhrifavaldurinn og athafnakonan Selma Soffía Guðbrandsdóttir var kærasta þegar hún steig upp í flugvél á leið til Barcelona en unnusta þegar hún steig...
Flúði af vettvangi, skildi bílinn eftir en fjarlægði númerin
📅 17.10.2026 👁️ 0
Flúði af vettvangi, skildi bílinn eftir en fjarlægði númerin
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að eiga við að minnsta kosti þrjá bílstjóra sem lögðu á flótta í nótt.Einn ökumaður flúði af vettvangi eftir að ...
Drógu logandi vinnuvél úr álverinu í Straumsvík
📅 17.10.2026 👁️ 0
Drógu logandi vinnuvél úr álverinu í Straumsvík
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti flóknu verkefni í álverinu í Straumsvík í nótt þegar kviknaði í vinnuvél inni í álverinu. Draga þurfti vélina ú...
Stormasamt veður og viðvaranir víða
📅 17.10.2026 👁️ 0
Stormasamt veður og viðvaranir víða
Von er á hvassviðri og stormum á stórum hluta landsins í dag, sérstaklega á vestanverðu landinu. Gular viðvaranir eru í gildi víða frá og eftir hádegi...
Al­var­lega slösuð eftir skot­á­rás í í­þrótta­húsi - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 0
Al­var­lega slösuð eftir skot­á­rás í í­þrótta­húsi - Vísir
Konan, sem er á þrítugsaldri, var flutt með sjúkrabíl á sjúkrahús með áverka sem lögreglan lýsti sem „mjög alvarlegum“. Á laugardagsmorgun var ástand ...
Canary Islands to extend breast cancer screening to more women from 2027
📅 17.10.2026 👁️ 0
Canary Islands to extend breast cancer screening to more women from 2027
More women living in the Canary Islands will be offered routine breast screening from next year, as the regional health service begins widening the pr...
Frestar gildis­töku refsi­að­gerða gegn Rúss­landi - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 0
Frestar gildis­töku refsi­að­gerða gegn Rúss­landi - Vísir
Trump undirritaði sjálfur lögin í síðasta mánuði en ákvörðun hans nú kom aðeins tveimur dögum áður en frestur til að hrinda þeim í framkvæmd rann út s...
Boy and man die in light air craft crash near Loch Lomond
📅 17.10.2026 👁️ 0
Boy and man die in light air craft crash near Loch Lomond
Emergency services were called at about 16:45 on Friday, and pronounced both dead at the scene.
Tveir handteknir vegna skotárásar í Stokkhólmi
📅 17.10.2026 👁️ 1
Tveir handteknir vegna skotárásar í Stokkhólmi
Tveir ungir menn hafa verið handteknir í Svíþjóð grunaðir um skotárás við íþróttahöll í Stokkhólmi í gærkvöldi. 25 ára kona liggur þungt haldin á sjúk...
Eldur í lyftara í ál­verinu í Straumvík - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Eldur í lyftara í ál­verinu í Straumvík - Vísir
Samkvæmt tilkynningu fóru tveir dælubílar á vettvang en það tók um tvo tíma að klára verkefnið vegna þess hve snúið það var. Ekki má nota vatn inni í ...
Stormur með tals­verðri rigningu síð­degis í dag - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Stormur með tals­verðri rigningu síð­degis í dag - Vísir
Á norðanverðu Snæfellsnesi er spáð sunnan roki og mjög snörpum vindhviðum, en slíkir vindar geta valdið foktjóni. Því hefur verið gefin út appelsínugu...
Sveitadraumurinn breyttist í mar­tröð - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Sveitadraumurinn breyttist í mar­tröð - Vísir
Það var í apríl árið 2022 sem hún vaknaði upp við að búið var að reisa níðstöng með afhöfðuðum hesti við heimili hennar. Nokkrum árum áður hafði fjöls...
Tveir reyndu að flýja lög­reglu á fótum eftir eftir­för - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Tveir reyndu að flýja lög­reglu á fótum eftir eftir­för - Vísir
Einn ungur ökumaður var stöðvaður af lögreglu á Suðurlandsvegi eftir að hafa verið mældur á 151 kílómetra hraða en hámarkshraði þar sem hann var stöðv...
„Margt sem ég hef séð situr í mér“
📅 17.10.2026 👁️ 1
„Margt sem ég hef séð situr í mér“
„Margt sem ég hef séð situr í mér“ Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að kon...
Trump dregur enn frekar úr viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi
📅 17.10.2026 👁️ 0
Trump dregur enn frekar úr viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi
Donald Trump Bandaríkjaforseti skrifaði undir forsetatilskipun í gær sem felldi úr gildi viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna gegn Rússlandi.Þær beindust ...
Drukku brjósta­mjólk á brúð­kaups­daginn - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 2
Drukku brjósta­mjólk á brúð­kaups­daginn - Vísir
Hjónin kynntust í Verzló árið 2016, þegar Kolbrún var busi og Arnór á þriðja ári. Þau eru miklir stuðboltar sem eru umkringt fjörugu fólki en Arnór ræ...
Óttar Guðmundsson skrifar: Þingmenn fara í bað
📅 17.10.2026 👁️ 2
Óttar Guðmundsson skrifar: Þingmenn fara í bað
Mynd Víða í Íslendingasögum er sagt frá örlagaríkum ferðum í
Greiningum barna fjölgaði um 58% í Reykjavík – umönnunargreiðslur tvöfölduðust hjá TR
📅 17.10.2026 👁️ 0
Greiningum barna fjölgaði um 58% í Reykjavík – umönnunargreiðslur tvöfölduðust hjá TR
Börnum sem fóru í greiningu hjá skólaþjónustu Reykjavíkur fjölgaði um 58% frá 2013 til 2024, meðan börnum í borginni fjölgaði aðeins um 4%. Á landsvís...
24-year-old man seriously injured in buggy accident in southern Gran Canaria
📅 17.10.2026 👁️ 0
24-year-old man seriously injured in buggy accident in southern Gran Canaria
A 24-year-old man was airlifted to hospital with serious injuries after falling from a buggy in southern Gran Canaria yesterday afternoon (Friday).The...
SATURDAY WEATHER: Sunny spells as temperatures ease across the Canary Islands
📅 17.10.2026 👁️ 1
SATURDAY WEATHER: Sunny spells as temperatures ease across the Canary Islands
The Canary Islands will have a mix of sunshine and cloud this Saturday, 17th October, with temperatures dropping towards the average for this time of ...
Frétta­tía vikunnar: Mis­tök, of­læti og vél­menni - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 2
Frétta­tía vikunnar: Mis­tök, of­læti og vél­menni - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Kínverskir bílar tóku myndbönd af æfingum norska hersins
📅 17.10.2026 👁️ 2
Kínverskir bílar tóku myndbönd af æfingum norska hersins
Norski herinn hefur komist að því að bílar frá Kína hafi safnað viðkvæmum upplýsingum um starfsemi hans.Meðal þess sem bílarnir skráðu og geymdu voru ...
Glæsihýsi brenna í gróðureldum við Los Angeles
📅 17.10.2026 👁️ 2
Glæsihýsi brenna í gróðureldum við Los Angeles
Glæsihýsi sem metin eru á milljónir bandaríkjadala urðu gróðureldum að bráð sunnan við Los Angeles í gær.Eldarnir hafa sviðið tæpa 190 hektara á skömm...
Expansion of Heathrow Airport would drive growth, chancellor Healey says
📅 17.10.2026 👁️ 1
Expansion of Heathrow Airport would drive growth, chancellor Healey says
It comes after the prime minister refused to say whether he backed expansion.
Óvíst hvað varð um 85 milljarða sem ráðstafa átti til viðbragðs við ebólufaraldri
📅 17.10.2026 👁️ 1
Óvíst hvað varð um 85 milljarða sem ráðstafa átti til viðbragðs við ebólufaraldri
Sóttvarnarstofnun Afríku segir óvíst hvert fé sem ráðstafa átti til viðbragða við ebólufaraldrinum hafa ratað. Upphæðin hleypur á 700 milljónum dala, ...
Three men jailed for 158 years each for murdering Australian brothers and US friend in Mexico
📅 17.10.2026 👁️ 1
Three men jailed for 158 years each for murdering Australian brothers and US friend in Mexico
Brothers Jake and Callum Robinson and their friend Carter Rhoad were killed on a surfing trip in an apparent botched robbery.
Eyðing Amazon-frumskógarins í Brasilíu ekki minni í 40 ár
📅 17.10.2026 👁️ 2
Eyðing Amazon-frumskógarins í Brasilíu ekki minni í 40 ár
Skýrsla var gefin út í gær sem sýnir fram á að eyðing regnskógarins í Brasilíu hefur ekki verið minni í fjóra áratugi.Niðurstöður skýrslunnar þykja já...
Trump waives several Russian sanctions as new US law takes effect
📅 17.10.2026 👁️ 2
Trump waives several Russian sanctions as new US law takes effect
Trump says parts of a new law that aims to punish Moscow for its war against Ukraine are against US national interests.
Trump waives several Russia sanctions as row with Zelensky intensifies
📅 17.10.2026 👁️ 1
Trump waives several Russia sanctions as row with Zelensky intensifies
The US president temporarily ends many restrictions on Moscow recently passed by Congress over "national security" concerns.
Faisal Islam: What I learned from a week with the world's top finance leaders
📅 17.10.2026 👁️ 4
Faisal Islam: What I learned from a week with the world's top finance leaders
At the IMF meeting in Bangkok this week finance and business leaders grappled with uncertainty.
Faisal Islam: Why China and AI are worrying global finance bosses
📅 17.10.2026 👁️ 0
Faisal Islam: Why China and AI are worrying global finance bosses
At the IMF meeting in Bangkok this week finance and business leaders grappled with uncertainty.
25 ára kona alvarlega særð eftir að skotum var hleypt af í íþróttahöll í Stokkhólmi
📅 17.10.2026 👁️ 3
25 ára kona alvarlega særð eftir að skotum var hleypt af í íþróttahöll í Stokkhólmi
25 ára gömul kona er alvarlega særð eftir að skotum var hleypt af í íþróttahöll í Älvsjö í Suður-Stokkhólmi um níuleytið að staðartíma í gærkvöldi.Íþr...
Miranda's tears, joy and dance moves steal show as celebrities battle deadly boredom on The Traitors
📅 17.10.2026 👁️ 3
Miranda's tears, joy and dance moves steal show as celebrities battle deadly boredom on The Traitors
Miranda Hart became emotional and spoke about her health problems as more action unfolded on Friday.
Börn með sérþarfir voru fórnarlömb skotárásar í Silver Rail-skólanum
📅 17.10.2026 👁️ 3
Börn með sérþarfir voru fórnarlömb skotárásar í Silver Rail-skólanum
Fórnarlömb árásarmannsins sem hóf skotárás í Silver Rail-grunnskólanum í Oregon í gær voru börn með sérþarfir. Árásarmaðurinn var sextán ára drengur o...
Faðir tveggja nem­enda í skólanum sá sem skaut á­rásar­manninn - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 5
Faðir tveggja nem­enda í skólanum sá sem skaut á­rásar­manninn - Vísir
Hin fimm ára Rhoam Summer og hin 25 ára Meghan Lambert, kennari við skólann, létust í árásinni sem átti sér stað í gær, fimmtudaginn 15. október, í Si...
Trump 'completely wrong' to restrict support for Ukraine, Italian minister tells BBC
📅 16.10.2026 👁️ 2
Trump 'completely wrong' to restrict support for Ukraine, Italian minister tells BBC
Defence Minister Guido Crosetto tells the BBC the US risks prolonging Russia's full-scale invasion rather than helping to end it.
Vaping: Why people who have never smoked are getting hooked
📅 16.10.2026 👁️ 1
Vaping: Why people who have never smoked are getting hooked
More than one million people now vape who have never been smokers, according to the ONS.
Halloween costumes 2026: From Obsession to Odyssey, the top TV, film and pop culture party outfits
📅 16.10.2026 👁️ 0
Halloween costumes 2026: From Obsession to Odyssey, the top TV, film and pop culture party outfits
Freaky Nikki, Dolly Parton and whimsical costumes like gargoyles are popular among adults dressing up this year.
Oregon teacher fought school attacker before armed dad killed suspect
📅 16.10.2026 👁️ 5
Oregon teacher fought school attacker before armed dad killed suspect
The 16-year-old suspect previously attended the primary school and had targeted a special educational needs classroom, police say.
Swinney insists 'stars are aligning' for Scottish independence
📅 16.10.2026 👁️ 0
Swinney insists 'stars are aligning' for Scottish independence
The first minister will tell delegates at the SNP conference in Aberdeen that 2026 has been a turning point in Scotland's "journey to nationhood".
Trump-stjórnin hyggst lána 17 milljónir olíutunna úr neyðarbirgðum – olíuverð nálgast 110 dali
📅 16.10.2026 👁️ 1
Trump-stjórnin hyggst lána 17 milljónir olíutunna úr neyðarbirgðum – olíuverð nálgast 110 dali
Trump-stjórnin hyggst lána 17 milljónir olíutunna úr neyðarbirgðum – olíuverð nálgast 110 dali Fréttin16. október 2026Erlent, TrumpLeave a Comment Ban...
Varaði við nýju Rúss­landi Pútíns - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 5
Varaði við nýju Rúss­landi Pútíns - Vísir
Trump gerði nýlega samkomulag við Vladimír Pútín um kaup á díselolíu og felldi niður refsiaðgerðir á rússneska díselolíu en Selenskí sagðist ekki geta...
Ferðamenn segja frá vonbrigðum sínum á Íslandi – „Ég myndi líklega ekki gera það aftur“
📅 16.10.2026 👁️ 5
Ferðamenn segja frá vonbrigðum sínum á Íslandi – „Ég myndi líklega ekki gera það aftur“
Íslenskar pylsur, þekktir ferðamannastaðir og sundlaug úti í náttúrunni eru meðal þess sem olli erlendum ferðamönnum vonbrigðum í heimsókn þeirra til ...
Ást­vinir þeirra sem létust í flug­slysinu bíða enn - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 5
Ást­vinir þeirra sem létust í flug­slysinu bíða enn - Vísir
Er þetta meðal þess sem kemur fram í umfjöllun fréttaveitunnar Reuters um málið en þar segir einnig að fjölskyldur ​farþeganna bíði óþreyjufullar svar...
Neitar að hafa takmarkað aðgang Úkraínu að Starshield
📅 16.10.2026 👁️ 5
Neitar að hafa takmarkað aðgang Úkraínu að Starshield
Donald Trump Bandaríkjaforseti þvertekur fyrir að hafa takmarkað aðgang Úkraínu að Starshield-kerfinu, sérstakri útgáfu af Starlink-gervihnattaþjónust...
Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
📅 16.10.2026 👁️ 1
Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg Maðurinn rétt fyrir handtökunaMaðurinn virtist hafa verið í miklu ójafnvægi Mynd: ...
„Fylgjumst grannt með fram­vindu mála“ - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 5
„Fylgjumst grannt með fram­vindu mála“ - Vísir
„Við erum hérna fleiri að halda upp á afmælið og erum að fylgjast með böndunum,“ segir Björn Hjaltason skordýraáhugamaður í samtali við blaðamann Vísi...
Zacharia was thrown into a whirlwind - and failed at a critical time for Trump
📅 16.10.2026 👁️ 5
Zacharia was thrown into a whirlwind - and failed at a critical time for Trump
The White House is facing growing adversity, writes the BBC's Anthony Zurcher, weeks before crucial midterm elections.
Katie Zacharia was thrown into a whirlwind - and failed at a critical time for Trump
📅 16.10.2026 👁️ 0
Katie Zacharia was thrown into a whirlwind - and failed at a critical time for Trump
The White House is facing growing adversity, writes the BBC's Anthony Zurcher, weeks before crucial midterm elections.