Jón styður Þorbjörgu gegn Þorgerði

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Jón Gnarr staðfestir í viðtali í Spursmálum orðið á götunni að í forystu Viðreisnar séu andstæðir pólar Þorgerður Katrín formaður og Þorbjörg Sigríður dómsmálaráðherra. Úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar er undir þeim formerkjum að ráðandi klíka í forystu flokksins keyri áfram stefnu sem hvorki stuðlar að vinnufriði innan þingflokksins né skapi Viðreisn pólitísk sóknarfæri.
Eftir ósigurinn 29. ágúst, þegar kjósendur sögðu nei í þjóðaratkvæðagreiðslu í þágu Viðreisnar, var skipaður ,,strategíuhópur“ innan flokksins. Jón Gnarr var í hópnum sem átti að skila niðurstöðu í nóvember. Inn á við skyldi hópurinn komast að samhljómi um hvað úrskeiðis fór í kosningabaráttunni í sumar. Út á við á hópurinn að leggja pólitískar línur til næstu missera í ljósi úrslitanna.
Þorgerður Katrín gerði starf ,,strategíuhópsins“ merkingarlaust strax daginn eftir ósigurinn 29. ágúst er hún boðaði frumvarp kennt við bókun 35. Utanríkisráðherra sagði nánast berum orðum að ekki yrði tekið mark á niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þorgerður Katrín ætlaði sjálf að sjá til þess að Ísland yrði límt við Evrópusambandið, þótt þjóðin hefði sagt nei við ESB-umsókn.
Þorgerður Katrín og Viðreisn áttu vitanlega að taka mark á leiðsögn þjóðarinnar í Evrópumálum og leggja á hilluna áform um að styrkja Brussel-línuna með íslenskri lagasetningu. Viðreisn fékk tækifæri til að friðmælast við þjóðina. Hroki utanríkisráðherra réð ferðinni en ekki sáttarhugur.
Í viðtalinu við Stefán Einar sagði Jón Gnarr að fámenn klíka réði ferðinni í forystu Viðreisnar. Jón nefndi engin nöfn en fimm eru án efa hluti klíkunnar: Þorgerður Katrín, Daði Már fjarmálaráðherra, Hanna Katrín atvinnuráðherra, María Rut varaformaður þingflokksins og Sigmar fráfarandi þingflokksformaður. Veikindi Sigmars virðast hafa átt sinn þátt í útgöngu Jóns; einnig tæpti hann á krankleika annarra í forystunni en setti ekki kjöt á þau bein. Slappleikinn í Viðreisn virðist ekki endilega líkamlegs eðlis.
Þingmenn Viðreisnar eru tvístígandi, jafnvel þeir sem teljast til forystuklíkunnar. María Rut varaformaður þingflokksins skrifaði í Eyjuna, málgagn flokksins, um mikilvægi sannleikans. Á yfirborðinu er greinin um rússneska botta, sem eru Viðreisn hugleiknir, en auðvelt er að yfirfæra greininguna á flokksleg innanmein:
Lýðræði þarfnast upplýsinga sem standast skoðun. Við verðum að gera sömu kröfur hvort sem þær styðja okkar eigin málstað eða andstæðinga okkar.
Ef við fordæmum áróður þegar hann kemur frá málstað sem okkur mislíkar en lítum fram hjá ónákvæmni þegar hann gagnast okkar eigin málstað, þá höfum við svikið sannleikann.
Tveir útvegir Viðreisnar blasa við. Einn kostur er að setja undir sig hausinn og berjast til síðasta manns á ESB-víglínunni. Úrsögn Jóns veit á framhaldið. Viðreisn er sært dýr. Blóðþefinn leggur í allar áttir. Á alþingi, í umræðunni og innan flokks. Í stjórnmálum eru iðulega snögg hamingjuskipti. Vinstri grænir og Píratar eru yngstu dæmin, hvorugur flokkur á þingmann. Annar kostur er að skipta um forystu. Jón stimplar sig úr þingflokki Viðreisnar en starfar á hliðarlínunni, er enn flokksfélagi. Úrsögnin er rækilega auglýst með viðtölum í fjölmiðlum. Einboðið er hvað sé á ferðinni. Gnarrinn bíður eftir nýrri forystu, styður Þorbjörgu Sigríði gegn Þorgerði Katrínu. Gangi plottið upp er Jón regicide á útlensku, konungsbani. Í tilfelli Viðreisnar drottningarbani. Slíkir menn hljóta umbun nýrra valdhafa. Til vara eru þeir sjálfir konungsefni.
Í flokki eins og Viðreisn fer innanflokksuppgjör að mestu fram í kyrrþey. And-klíkan gegn Þorgerði Katrínu, sem Jón nefnir í viðtalinu, hefur t.a.m. ekki gefið sig fram. Álykta má að helft þingflokksins sé tvístígandi eða hlynnt forystuskiptum. Uppgjörið í Viðreisn er á lokuðum spjallrásum annars vegar og hins vegar tveggja og þriggja manna tali. Viðreisn er ekki fjöldahreyfing. Fyrir utan tíu manna þingflokk má bæta við öðrum tíu til fimmtán er véla um flokksvöldin. Úrsögn Jóns úr þingflokki Viðreisnar er ekki einleikur heldur opinbert útspil í valdatafli á bakvið tjöldin.