Menn sem útskrifuðust úr menntaskóla vorið 1960 sendu nafnlaust bréf á fjölmiðla þar sem þeir lýstu sprengingu Hafmeyjunnar í Tjörninni sér á hendur. Í síðasta þætti þáttaraðar Rásar 1 Hver sprengdi hafmeyjuna? er rætt við konu sem segir mennina hafa skrifað bréfið í gríni. Þeir voru algjörlega ótengdir sprengjuvörgunum, að hennar sögn.
„Þetta var góður vinahópur á menntaskólaárunum. Sumir höfðu beittari húmor en aðrir og fengu þá flugu í höfuðið að skrifa og senda þetta bréf og þykjast vera sprengjumennirnir,“ segir konan, sem kýs að vera nafnlaus.
„Þeir höfðu samt ekkert vit á list hvað þá að þeir vissu eitthvað um Nínu.“
Sú eina sem er á lífi sem veit þetta
Hafmeyjan var sprengd af skemmdarvargi eða -vörgum á nýársnótt 1960 eftir miklar deilur. Bréfið var sent fáeinum dögum síðar, því lýst yfir að ástæða skemmdarverksins væri fagurfræðileg. Saga sprengingarinnar og eftirmál hennar eru rakin í þáttunum Hver sprengdi hafmeyjuna? og nýju ljósi varpað á málið. Í kjölfarið hafði heimildarmaðurinn samband við umsjónarmann þáttanna, Höllu Harðardóttur.
„Þar sem nú í dag er verið að fjalla um þennan löngu liðna atburð og ég hef haft gaman af að fylgjast með þá rifjaðist þetta atvik upp og mig langaði bara að sannleikurinn um bréfið fengi að koma í ljós, sennilega er ég sú eina sem er á lifi og veit þetta, segir konan.
Hún ítrekar að þeir sem skrifuðu bréfið tengdust á engan hátt þeim sem sprengdu styttuna.
Konan eyddi áramótunum með vinahópnum í húsi foreldra sinna, en allir voru vinirnir á síðasta ári í menntaskóla í Reykjavík. Þau fóru svo uppáklædd á ball í Sjálfstæðishúsið og dönsuðu alla nóttina.
„Þetta eru áramót sem ég man alltaf, því ég var að trúlofa mig. Og þarna var þessi hópur með okkur í matarveislu heima hjá foreldrum mínum. Og það var alls ekki haft vín um hönd á þessum tíma en þetta var mjög náinn og góður hópur.“
Glöð að leiða sannleikann í ljós
„Þetta var bara galgopaháttur, og spéfuglar í hópnum,“ segir hún aðspurð um ástæðuna.
„Þetta var allt í gríni og ég hef þagað yfir þessu allar götur síðan.“
Ertu ánægð með að hafa sagt frá þessu?
„Ég held það. Ég held að ég hafi fengið hugboð um að ég ætti að gera þetta þegar ég fór að hlusta á þessa þætti. Afhverju ekki? Ég er sennilega sú eina sem er á lífi sem veit þetta. Ég held að ég geri listakonunni gott með því að koma með þennan sannleika í ljós.“
Þáttaröðin Hver sprengdi hafmeyjuna er aðgengileg á Spilara RÚV og hlaðvarpsveitum.