Er þetta meðal þess sem kemur fram á vef Vegagerðarinnar en gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi síðdegis í dag vegna hvassviðris með talsverðri rigningu. Eru ökumenn hvattir til að fylgjast með færð en varasamar aðstæður geta skapast á svæðinu þar sem hviðurnar verða mestar. i. Lausamunir fjúka líklega og möguleiki er á staðbundnu foktjóni á Snæfellsnesi.
Síðdegis og í kvöld einnig staðbundnir og varasamir sviptivindar í Skagafirði, s.s. milli Varmahlíðar og Sauðárkróks, í Fljótum og Eyjafirði, m.a. í Hörgárdal og á Molhaugnahálsi. Á sunnudag verður aftur mjög hvasst og byljóttur vindur á landinu.