Mótmælendur í Frakklandi réðust inn í ráðhúsið í Marseille í dag. Fréttaveitan AFP greinir frá. Mótmælin hófust í byrjun mánaðar þegar framhaldsskólanemar kröfðust betri aðbúnaðar í skólum en þau snúast að mestu um háan framfærslukostnað.
Áætlað er að hátt í 170 þúsund safnist saman í mótmælum í París, Marseille, Lyon og víðar um landið í dag. Yfir 160 hafa verið handteknir frá því að mótmælin brutust fyrst út.
Grímuklæddir mótmælendur ruddust inn í ráðhúsið í Marseille í dag. Fréttamaður AFP segir nokkra þeirra hafa farið inn fyrir og einn þeirra krotað „A“-tákn anarkista á vegg áður en lögreglan greip inn í.
„Við erum að taka Bastilluna,“ hrópaði einn mótmælandi og vísaði þannig til frönsku byltingarinnar árið 1789.
Mikill hiti hefur færst í mótmælin undanfarna daga og hefur lögreglan í París og Marseille notað táragas til að dreifa mótmælendum. Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur hvatt til stillingar.