Fjölmiðlakonan Lilja Katrín Gunnarsdóttir sem sér um Bítið á Bylgjunni er konan sem ætlar að baka í sólarhring með fjölskyldu sinni og er tilgangurinn að safna fjármunum fyrir Örninn minningarsjóð.
„Þetta verður þá í þriðja sinn sem við fjölskyldan höldum svona maraþon. Fyrstu tvö voru heima hjá okkur í Kópavogi. Nú erum við að færa út kvíarnar, verðum eða erum í sýningarsal HTH. Margir þekkja Ormsson í Lágmúla. Þau voru svo góð að lána okkur aðstöðuna, þar eru fullbúin eldhús þannig að við erum að prófa að fara með þetta út fyrir veggi heimilisins, sjáum hvernig það fer allt saman.“
Verkefnið sé einfaldlega orðið of stórt og rúmist ekki inni á heimili Lilju lengur.
Hvernig fer þetta fram? Þið bakið og fólk kaupir veitingar eða styrkir ykkur eða hvað?
„Í rauninni þarftu ekki að gera neitt nema bara mæta og fá þér köku. Þú mátt bara koma og fá þér köku og kaffi og setjast niður og spjalla. Það er bara í góðu lagi. Þú þarft ekkert að styrkja. Við erum ekki að telja neitt í rauninni. En ef fólk vill styrkja málefnið þá erum við með posa, það eru líka upplýsingar um reikningsnúmer þannig að okkur þykir voða vænt um peningastyrkina sem renna þá bara beint til Arnarins.“
Á boðstólum verða vöfflur, pönnukökur og væntanlega skúffukaka, jafnvel brauð og kanelsnúðar.
„Við héldum fyrst bakstursmaraþon 2016. Þá söfnuðum við fyrir Kraft og þá söfnuðum við rúmri hálfri milljón. Þá hélt ég að það kæmu svona tíu. Svo héldum við þetta aftur í fyrra. Þá hélt ég mögulega að það kæmu tuttugu manns en þá söfnuðum við sko rúmum tveim milljónum sem fór fram úr okkar, sko, villtustu draumum.“
Hún hvetur fólk til að kíkja við.
„Það er engin kvöð og engin skylda að gera yfirhöfuð nokkurn skapaðan hlut nema bara setjast niður og fá sér kaffibolla og það sem var svo fallegt í fyrra var að það kom fullt af fólki sem hefur í rauninni engan stað til þess að fara á um helgar til þess að hitta mann og annan og sýna sig og sjá aðra, er kannski svolítið eitt, kom til okkar, fékk sér kaffi og kökur, hitti annað fólk og það eiginlega held ég að hafi verið það dýrmætasta af öllu, þannig að ég hvet bara sem flesta til þess að koma og þið tapið ekkert á því, þið bara græðið.“