„Þetta eru plöturnar sem eru að flettast af vestanverðu húsinu, við erum að fylgjast með en það er erfitt að komast að,“ segir hann og að það blási mikið af húsinu. Þakið sé hátt uppi og aðstæður því erfiðar.
Gul viðvörun tók gildi á svæðinu klukkan 11 og síðdegis í dag tekur appelsínugul viðvörun við. Varað hefur verið við ferðalögum á svæðinu og mögulegum vegalokunum. Þá hafa íbúar verið hvattir til að tryggja lausamuni.
Hinrik segir vinnu hafa verið í gangi á þakinu en þakið hafi verið fest. Hann segir verktaka á svæðinu vera að skoða aðstæður auk þess sem björgunarsveit er til taks.