Þegar kemur að leyfisveitingum í sjókvíaeldi virðist sem enginn í kerfinu beri neina ábyrgð nema bara á sínum afmarkaða hluta og því er enginn með almennilega yfirsýn. Svo eru stofnanir undirseldar öflugum norskum fjárfestum sem beita fyrir sig frekum lögmönnum. Svo eru leyfin veitt þrátt fyrir að málin séu ekki einu sinni sæmilega unnin. Að auki eru íslensk lög og reglur stundum verulega gölluð. Katrín Oddsdóttir, lögmaður og umhverfisverndarsinni, ræðir við Ólaf Arnarson í hlaðvarpi Eyjunnar.
Katrín Oddsdóttir: Íslenskar stofnanir undirseldar norskum fjárfestum með freka lögmenn á sínum snærum