Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Hægt er að hlusta með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.
Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði í gær forsetatilskipun um að fresta gildistöku umfangsmikilla nýrra refsiaðgerða og viðskiptaþvingana gegn rússnesku efnahagslífi.
Menntamálaráðherra segir að ekki sé búið að ákveða hvernig fjármagni, sem úthluta á í ný námsgögn, verði varið.
Gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi víða um land síðdegis í dag þegar næsta lægð gengur yfir landið.
Bakstursmaraþon hefst í Kópavogi klukkan tólf þar sem fjölskylda ætlar að baka næstu 24 klukkutímana til styrktar góðu málefni. Yfirbakarinn hvetur fólk til að kíkja við.
Við fjöllum um Bakgarðshlaupið sem fer fram í Elliðaárdal um helgina þar sem landslið hlaupara keppir á heimsmeistaramótinu.
Í sportinu fjöllum við svo um hasar í leik Breiðabliks og Víkings í gær.