Elko innkallar ofn vegna brunahættu

Elko í Skeifunni
Mynd: Brynhildur Jensdóttir
Vegna brunahættu innkallar Elko APT Cozy, 2000W rafmagnsofna með tilteknu vörunúmeri. Ofnarnir voru seld á tímabilinu 23. desember 2023 til 23. apríl 2026.
Innköllunin nær til eftirfarandi tækja:
Vara:
Rafmagnsofn, APT Cozy, 2000W
Gerð (Model):
Apt 31689
Vörunúmer:
EAN 5722000316893
Mikilvægt- eftirfarandi þarf að gera:
- Hætta strax notkun á ofninum og taka hann úr sambandi.
- Skila ofninum í næstu verslun Elko eða hafa samband við þjónustuver fyrirtækisins.
- Viðskiptavinir eiga rétt á endurgreiðslu eða nýrri vöru.
Mynd: ELKO