Í færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í gær kemur fram að 3. sætið á Íslandsmóti sé í höfn en Pawel leysti kubb blindandi á rétt rúmum fimm mínútum og sautján sekúndum. Mótið fer fram alla helgina og er haldið í Háskólanum í Reykjavík en það var einnig keppt í því að leysa minni töfrateninga sem og svokallaðan Pyraminx sem er eins konar pýramídalaga töfrateningur.
Heimsmetið í því að leysa 3x3 töfratening blindandi er 11 sekúndur og 56 sekúndubrot en það var hinn bandaríski Tommy Cherry sem sló það í sumar. Það er í sífellu verið að slá metið um hraðasta tímann til að leysa Rúbikskubb en sá sem á núverandi met er hinn níu ára gamli Xuanyi Geng frá Kína.