Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst á níunda tímanum í gær tilkynning um slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, á Gæsavatnaleið. Fjölmennt lið viðbragðsaðila var sent á vettvang ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar og er aðgerðum nú lokið á slysstað. Þetta kemur fram í færslu lögreglunnar um málið en frekari upplýsinga er að vænta síðar. Tilkynning lögreglu er eftirfarandi:
Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út í gærkvöldi vegna slyss á hálendinu