Aðstandendur Rio Tinto á Íslandi telja enga tengingu vera á milli tveggja eldsvoða í álverinu í Straumsvík. Þar kviknaði í sitt hvorum áltökubílnum með aðeins viku millibili. Slökkvilið var kallað til í báðum tilfellum.
Áltökubílar eru notaðir til að flytja ál úr kerskála yfir í steypuskála.
„Það er auðvitað alltaf áhyggjuefni og það er talsverð hætta sem skapast þegar það kemur upp eldur í tæki. En við teljum að þessi tilteknu tvö atvik séu algjörlega ótengd og að öllum líkindum af allt öðrum orsökum,“ segir Bjarni Már Gylfason, leiðtogi samskipta hjá Rio Tinto á Íslandi.
Engin ástæða sé til að óttast um öryggi starfsmanna í álverinu.
„Okkar fólk þekkir til hvernig á að bregðast við og okkar fyrsta forgangsmál er alltaf að tryggja þeirra öryggi. Það mun ekki breytast.“
Orsakir eldsvoðanna til rannsóknar
Bjarni Már segir starfsfólk hafa brugðist rétt við eftir að kviknaði í.
„Það kviknaði eldur í vinnuvélinni í álverinu í nótt og starfsfólk fór að bregðast strax við með viðeigandi hætti. Það hafði fljótt samband við slökkvilið sem brást fljótt og vel við og var komið fljótt á staðinn til að slökkva eldinn,“ segir hann.
„Það var allt rétt gert og vel brugðist við. Það er í fyrsta forgangi hjá okkur að tryggja öryggi alls starfsfólks.“
Vinnuvélin, áltökubíll, er sams konar tæki og kviknaði í um síðustu helgi.
„Hins vegar er þetta algjörlega allt önnur orsök þessa tiltekna atviks. Þannig að þetta eru algjörlega ótengd atvik.“
Getur þú sagt mér hver orsökin var í síðustu viku eða í gær?
„Það er ennþá rannsókn og vinna í gangi sem fer mjög vandlega yfir þetta. Það er ekkert hægt að segja til um það að svo stöddu,“ svarar Bjarni Már. „Við erum með marga svona bíla í rekstri og það er bara stöðug endurnýjun á þeim í gangi. Þeir eru ekkert komnir sérstaklega til ára sinna.“
Er þörf á að endurnýja áltökubílalagerinn umfram það sem hefur verið gert?
„Það þarf auðvitað bara að bregðast við tjóni á þessum tilteknu tækjum. En við erum bara með öflugt og úrræðagott starfsfólk sem mun takast á við það,“ segir Bjarni Már.