Karlmaður var með dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás sem átti sér stað á bifreiðaverkstæði á Akureyri í nóvember á síðasta ári. Dómari taldi það ekki gefa tilefni til refsimildunar að maðurinn taldi brotaþola hafa brotið gegn dóttur sinni fyrir nokkrum árum.
Alvarleg líkamsárás á bifreiðastæði á Akureyri - Réðst á manninn sem hann taldi hafa brotið gegn dóttur sinni