Kornbóndi á Suðurlandi segir að fjárhagslegt tjón vegna ágangs álfta á ökrunum geti numið tugum milljóna króna.
Hann vill að fólk sem stundar kornrækt fái leyfi til að skjóta fuglinn sem er friðaður.
„Þetta fer léttilega í tuga milljóna króna tap – bara af álftinni. Hún er að borða af okkur fóðrið fyrir svínin og það margfaldast svo rosalega kostnaður.“
Þetta segir Auðunn Magni Björgvinsson, kornbóndi á Gunnarsholti á Hellu. Hann segir ágang álftarinnar hafa verið vandamál til margra ára en að undanfarið hafi það aukist til muna.
Þyrfti að skjóta „100–200 á dag“ um tíma
Auðunn telur að mörg þúsund álftir haldi til í nágrenni bæjarins sem éti allt að 10–60 hektara af korni af honum. Aðrir bændur í grenndinni eiga við svipað vandamál að stríða.
Auðunn segir að bændur geti ekki gert neitt til að fæla álftina í burtu. „[Hún] þekkir það alveg að við megum ekki skjóta hana.“
Sjálfur er hann ekki hlynntur því banni.
„Það þyrfti að byrja á því að skjóta alveg 100–200 á dag, eða meira, í svolítinn tíma til að ná smá stjórn,“ segir hann.
Auðunn segir að til lengri tíma litið þurfi að gefa bændum leyfi til að skjóta álftir. „Til að eiga eitthvað inni til að vernda sig.“