Lögreglumenn hafa beitt mótmælendur táragasi í París, Bordeaux og Lyon samkvæmt vef BBC. Þar kemur einnig fram að myndefni frá AFP-fréttastofunni sýnir mótmælendur í Marseille nota málmgirðingu til að brjóta upp dyrnar á meðan stærri hópur mótmælenda, sumir með grímur, fylgist með.
Í öðru myndskeiði sést fólk hlaupa inn í ráðhúsið sem er sögufræg bygging frá 17. öld. Einn einstaklingur kastar stól og annar spreyjar tákni anarkista, hring utan um bókstafinn A, á vegg.
Lögregla greip inn í og tvístraði mótmælendunum. Samkvæmt fréttastöðinni BFMTV sagði Benoît Payan, borgarstjóri Marseille, að skemmdirnar væru „takmarkaðar“.
Á vef BBC kemur einnig fram að eldur hafi kviknað á ferðamannaskrifstofu í borginni Lyon og að lögregla í París hafi nú eftir hádegi gripið til vatnsbyssa til að verjast mótmælendum í París.
Þar kemur einnig fram að innanríkisráðuneytið í Frakklandi hafi fordæmt það sem það kallar „markviss ofbeldisverk“ og sakar suma mótmælendur um að reyna að ræna verslanir og ráðast á lögreglu.
Bönnuðu samkomur og lokuðu lestarstöðvum
Samkvæmt frétt Guardian bannaði lögreglan nokkrar fyrirhugaðar samkomur í miðborg Parísar og lokaði neðanjarðarlestum nærri fjölförnum stöðum eins og Champs-Élysées og nærri forsetahöllinni, þinghúsinu og skrifstofum ríkisstjórnarinnar.
Mótmælin fylgja þriggja vikna mótmælaöldu undir forystu stúdenta víðs vegar um landið. Kallað hefur verið eftir því að verkalýðsfélög og áberandi einstaklingar úr hinni svokölluðu gulu vestin-hreyfingu frá 2018 taki þátt í mótmælunum. CGT, eitt stærsta verkalýðsfélag Frakklands, hefur lýst yfir stuðningi við mótmælin og kallað eftir „hærri launum og lífeyri, lægra verðlagi og verndun opinberrar þjónustu sem mætir þörfum fólks“.
Ákall hefur verið í vikunni á samfélagsmiðlum um að endurvekja hreyfingu gulu vestanna sem varð til árið 2018 í andstöðu við félagslegt óréttlæti.
Í frétt Guardian segir að mótmælendur í endurskinsvestum hafi í dag lokað götum og að í París hafi verið mikill viðbúnaður lögreglu. Hann hafi verið mjög sýnilegur í miðborg Parísar, einkum nærri kennileitum á borð við Champs-Élysées-breiðgötuna og Sigurbogann.
„Við berjumst vegna þess að framfærslukostnaðurinn er orðinn allt of mikill, vegna þess að eldsneytisverð er of hátt og vegna þess að framhaldsskólanemar um allt land verða fyrir ofbeldisfullum árásum og eru slasaðir einfaldlega fyrir það eitt að reyna að mótmæla og krefjast fleiri kennara og mannsæmandi námsaðstæðna,“ er haft eftir 19 ára mótmælanda í París sem gaf upp nafnið Lola í frétt Guardian.
Hvatti til stillingar
Í frétt Guardian segir að Macron hafi í gær hvatt til stillingar og að mótmælendur myndu virða annað fólk og eignir þess. Macron er nú á lokaspretti forsetatíðar sinnar.
„Það eru stjórnarskrárvarin réttindi að mótmæla og tjá sig og ég hef alltaf verið vakandi fyrir því að þessi réttindi séu virt að fullu,“ sagði hann. „En þessum réttindum fylgir sú skylda að sýna virðingu. Virðingu fyrir fólki, virðingu fyrir eignum og þar með skuldbindingu um að móðga ekki eða eyðileggja.“
Macron sagði það „óásættanlegt“ að fólk mætti eingöngu til að valda skemmdum og skapa óeirðir.
Mótmælin hófust í síðasta mánuði í skólum í fátækum úthverfum norðan við París. Reiði vegna fjarvista kennara og lélegs aðbúnaðar í skólum breyttist fljótt í landsmótmæli gegn ójöfnuði, ónógum opinberum útgjöldum og versnandi gæðum menntunar.
Undanfarnar vikur hafa þúsundir verið handteknar, hundruð slasast og kveikt hefur verið í skólum. Mótmælin hafa haft áhrif á kosningabaráttuna fyrir forsetakosningarnar og vakið alþjóðlega athygli.
Mótmælendur hafa kennt vopnum sem lögregla notar til að hafa stjórn á óeirðum um sérstaklega alvarlega áverka sem sumir unglingar hafa hlotið. Laurent Nuñez innanríkisráðherra stöðvaði notkun ákveðinnar tegundar rafbyssusprengju gegn ungum mótmælendum eftir að aflima þurfti fimmtán ára ungmenni eftir að slík sprengja var notuð á mótmælum.