Kínverski kommúnistaflokkurinn segist reiðubúinn að auka samstarf við Samfylkinguna og aðra helstu stjórnmálaflokka Íslands um stjórnarhætti og stjórnsýslu. Þetta kemur fram í frétt á vef alþjóðadeildar miðstjórnar flokksins, birtri á ensku 16. október. Í fréttinni er þetta orðað svo: „The CPC stands ready to deepen experience exchanges in state governance and administration with the Social Democratic Alliance and other major Icelandic political parties“. Þar segir jafnframt að íslensku flokkarnir séu reiðubúnir að efla samskipti við kommúnistaflokkinn á öllum stigum, einkum meðal ungra stjórnmálamanna.
Samkvæmt vefnum leiddi Lu Kang, vararáðherra alþjóðadeildarinnar, sendinefnd til Íslands 12.-14. október. Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra, og Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, hafi hitt nefndina hvor í sínu lagi. Þar segir einnig að Lu hafi átt viðræður við Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, og að He Rulong, sendiherra Kína á Íslandi, hafi verið viðstaddur.
Segir íslensku flokkana vilja efla samskiptin
Í frásögn kínverska vefsins segir að Samfylkingin og aðrir helstu stjórnmálaflokkar Íslands vilji með auknum samskiptum og viðræðum efla gagnkvæman skilning og vináttu. Sérstök áhersla sé á unga stjórnmálamenn.
Vefurinn eignar íslenskum viðmælendum sendinefndarinnar einnig þá afstöðu að samskipti ríkjanna séu í góðum farvegi, Ísland fylgi fast fram stefnu um eitt Kína og leggi mikla áherslu á hlutverk Kína í alþjóðamálum. Samkvæmt sömu frásögn hafi íslenskir viðmælendur sendinefndarinnar hrósað árangri Kína í vísindum, tækni og grænum umskiptum, sem og skuldbindingu landsins við að verja núverandi alþjóðakerfi og viðleitni þess til alþjóðlegrar stjórnar á gervigreind. Vefurinn tilgreinir ekki hver viðmælendanna hafi sagt hvað.
Samkvæmt vefnum vildi Lu auka samstarf um viðskipti, jarðhita, heilbrigðismál og menningarskipti. Hann hafi minnt á fund Xi Jinping og Höllu Tómasdóttur forseta í október 2025 og að í ár séu 55 ár frá stofnun stjórnmálasambands ríkjanna.
Flokkatengsl í þágu utanríkisstefnu Kína
Alþjóðadeildin er deild innan kommúnistaflokksins sem fer með samskipti hans við erlenda stjórnmálaflokka. Á eigin vef segist hún hafa tengsl af ýmsu tagi við yfir 600 stjórnmálaflokka og samtök um heim allan til að þjóna heildarutanríkisstefnu Kína.
Í ritrýndri grein í International Studies Quarterly frá 2020 er flokkatengslunum lýst sem leið til að kynna pólitíska og efnahagslega hagsmuni Kína, skapa jákvæða mynd af landinu, miðla reynslu af flokksstýrðu stjórnkerfi og afla upplýsinga.
Ólíkar frásagnir af heimsókninni 2025
Í frétt alþjóðadeildarinnar frá október 2025 sagði að Lu hefði hitt sendinefnd Samfylkingarinnar í Peking undir forystu Guðmundar Árna Stefánssonar, þáverandi varaformanns. Þar var ferðinni lýst sem fyrstu heimsókn flokksins til Kína í boði deildarinnar.
Mannlíf greindi síðar frá því að Guðmundur Árni hefði gefið aðra skýringu. Hann hefði verið í einkaerindum, greitt ferðakostnað sjálfur og ekki kannast við að sendinefnd Samfylkingarinnar hefði verið í Kína.