Fregnir af andláti Tetra-kerfisins eru stórlega ýktar, segir sérfræðingur í talstöðvarkerfum og neyðarsamskiptum. Mikilvægt sé að fara ekki of geyst við að skipta út neyðarsambandskerfum, og ekki slökkva á Tetra fyrr en tryggt sé að annað kerfi geti tekið við að fullu.
Neyðarsímtöl og fjarskipti hafa verið töluvert í umræðunni undanfarið eftir að í ljós komu alvarleg áhrif lokunar 2G og 3G kerfanna á neyðarhringingar, en fjölmörg dæmi eru þess að fólk í alvarlegri neyð hafi ekki getað hringt í Neyðarlínuna eftir að slökkt var á kerfunum.
Sigurður Ingi Hauksson, fulltrúi Neyðarlínunnar hjá Korda, sem er sameinað félag Farice, Öryggisfjarskipta og tæknihluta Neyðarlínunnar, segir mikilvægt að læra af þessu áður en ráðist verður í að skipta út Tetra-fjarskiptakerfinu. „Það tekur mörg ár að plana og hugsa og hanna þessi kerfi, girða fyrir öll mistök og umþóttunartíminn og samkeyrslan skiptir máli.“
Sigurður hélt erindi á alþjóðlegu ráðstefnunni Björgun 2026 sem fram fer í Hörpu um helgina. „Þetta eru kerfi sem mega aldrei klikka þau eiga bara alltaf að virka þannig að við förum mjög hægt hægt í sakirnar,“ segir Sigurður.
Tetra er talstöðvarkerfi sem viðbragðsaðilar eins og lögregla, sjúkra- og slökkvilið, almannavarnir og björgunarsveitir nota, en til stendur að skipta því út á næstunni.
Sigurður segir mikilvægt að annað kerfi sé tilbúið til að taka við áður en slökkt verður á Tetra-kerfinu. Nýja kerfið þurfi að vera með sama öryggi, dreifingu og uppitíma. „Grundvallarkrafan verður sú að það verður ekki minni þjónusta heldur en er í Tetra í dag,“ segir Sigurður.
Í öryggisskyni þurfi líklega að reka bæði kerfin samhliða fyrst um sinn. „Tetrakerfið á eftir að vera í rekstri núna næstu árin,“ segir Sigurður. „Við erum með samninga við framleiðenda kerfisins til 2032 en við erum hins vegar að skoða auðvitað og vinna mjög mikið í framþróun og skoða hvað mun taka við, en það tekur mörg ár að innleiða nýtt kerfi.“
Ekki liggur fyrir hvaða kerfi tekur við. Fregnir af andláti Tetra-kerfisins eigi ekki við rök að styðjast. „Kerfið er í fullum rekstri og fréttir af andláti þess eru stórlega ýktar.“