Tíu lífeyrissjóðir eiga samanlagt tæplega helmingshlut, eða 46,23 prósent, í Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, sem nú er til rannsóknar hjá Samkeppniseftirlitinu vegna gruns um brot á samkeppnislögum. Stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna segir sjóðinn íhuga að kalla eftir skýringum frá stjórnendum Ölgerðarinnar.
Í fréttaskýringaþættinum Kveik á RÚV í vikunni var fjallað ítarlega um samkeppnisstöðu Ölgerðarinnar og umkvartanir keppinauta fyrirtækisins. Þar greindu forsvarsmenn minni brugghúsa frá því að veitingastaðir hefðu neitað að taka vörur þeirra í sölu eða jafnvel tekið þær úr sölu og vísað til gildandi samninga við Ölgerðina. Félagið er stærsti aðilinn á áfengismarkaði hér á landi.
Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður móðurfélags Ölgerðarinnar, sagðist í samtali við Vísi ekki vita til þess að einkasöluákvæði hefðu verið í samningum fyrirtækisins við bari, skemmtistaði og veitingahús. Slík ákvæði hefðu hins vegar verið í samningum við nemendafélög og skipuleggjendur útihátíða. Félagið hyggst endurskoða samningagerð við nemendafélög í háskólum.
Áhersla á að fyrirtæki fari að samkeppnislögum
Lífeyrissjóður verzlunarmanna er fjórði stærsti hluthafi Beru með tæplega átta prósenta eignarhlut. Í hluthafastefnu sjóðsins er sérstaklega kveðið á um að við fjárfestingar sé lögð áhersla á að fyrirtæki starfi í samræmi við samkeppnislög og reglur og setji sér stefnu í þeim efnum.
Jón Ólafur Halldórsson, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, segir nú til skoðunar hvernig sjóðurinn eigi að bregðast við rannsókninni á Ölgerðinni.
„Eins og staðan er núna erum við að skoða þetta mál innan sjóðsins og móta viðbragðið. Við erum með hluthafa- og eigendastefnu sem að sjálfsögðu er höfð til hliðsjónar þegar svona mál koma upp. En eins og staðan er núna þá liggur náttúrulega ekki fyrir nein niðurstaða í þessu máli. Þetta eru fyrstu dagar þessara rannsókna,“ segir Jón Ólafur.
Íhuga að kalla eftir skýringum
Hann segir meðal annars koma til greina að kalla eftir skýringum frá stjórnendum Ölgerðarinnar.
„Það er að sjálfsögðu eitt af því sem kemur til greina að við köllum eftir skýringum frá stjórnendum Ölgerðarinnar,“ segir hann.
Aðspurður hver viðbrögð lífeyrissjóðsins yrðu ef rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós að Ölgerðin hefði brotið gegn lögum eða reglum segir Jón Ólafur of snemmt að svara því.
„Það er nú erfitt að segja akkúrat til um það. Við vitum í sjálfu sér ekki um eðli mögulegra brota,“ segir hann.
Enginn beinn fulltrúi í stjórn
Þrátt fyrir að vera fjórði stærsti hluthafi móðurfélags Ölgerðarinnar á Lífeyrissjóður verzlunarmanna ekki beinan fulltrúa í stjórn félagsins, að sögn Jóns Ólafs.
„Nei, við erum ekki með beinan fulltrúa í stjórn Ölgerðarinnar. Við fylgjum leiðbeiningum um góða stjórnarhætti inni í sjóðnum og erum náttúrulega með hluthafastefnuna þar að auki. Venjulega er það nú þannig að þessi stóru félög eru með tilnefningarnefndir og tilnefna stjórnarmenn eftir vandlega skoðun og við fylgjum því oftast. Þá er um að ræða stjórnarmenn sem eru óháðir og í rauninni eru að vinna fyrir alla hluthafa, ekki eingöngu einn hluthafa.“
Aðspurður hvort rætt hafi verið á vettvangi lífeyrissjóðanna að eiga sameiginlegan fulltrúa í stjórnum fyrirtækja til að gæta hagsmuna sjóðanna og þeirra gilda sem þeir starfa eftir segir Jón Ólafur málið hafa komið til umræðu.
„Þetta kemur upp á vettvangi lífeyrissjóðanna en mér sýnist nú að meira og minna hafi allir lífeyrissjóðirnir valið þá leið að styðja tilnefningar tilnefningarnefnda og ég held að það hafi nú reynst bara bærilega farsælt hingað til.“.