Bakgarðshlaupið gengur út á að hlaupa 6,7 kílómetra hring á klukkustund, eins oft og hægt er. Hlaupið er haldið alla jafna tvisvar sinnum á ári en nú er komið að landsliðakeppninni þar sem þeir fimmtán hlauparar sem hafa farið hvað lengst taka þátt.
Íslensku hlaupararnir keppa á móti hlaupurum í 68 öðrum löndum í því hver getur enst lengst. Phil Gore frá Ástralíu á heimsmetið sem eru 119 hringir og því 119 klukkustundir. Þorleifur Þorleifsson á Íslandsmetið í Bakgarðshlaupi sem eru 62 hringir.
Hlaupararnir fimmtán eru Þorleifur Þorleifsson, Mari Jaersk, Þórdís Ólöf Jónsdóttir, Guðjón Sigurðsson, Guðmundur Lúther Hallgrímsson, Sylwester Kalucki, Gunnar Lárus Karlsson, Tómas Þór Jacobsen, Sölvi Snær Egilsson, Adam Komorowski, Friðrik Benediktsson, Þuríður Elín Þórarinsdóttir, Hekla Hannesdóttir, Oddur Máni Malmberg og Hildur Guðný Káradóttir.
Fylgstu með í vaktinni hér fyrir neðan. Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða síðuna.