Áður hefur verið greint frá því að þau Berglind Alda Ástþórsdóttir, leikkona og þáttastjórnandi, Auðunn Blöndal, sjónvarpsmaður, leikari og veitingamaður, Saga Garðarsdóttir, leikkona og uppistandari, og Jón Jónsson, einn vinsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, verði á meðal keppanda og liggur nú fyrir að Örn verður sá fimmti.
Örn Árnason þarf varla að kynna, enda fyrir löngu orðinn goðsögn sem leikari, eftirherma og sjónvarpsmaður. Hann hefur skemmt landsmönnum um áratugaskeið með Spaugstofunni og Með afa, auk þess að leika í kvikmyndum á borð við Stellu í orlofi og Karlakórinn Heklu. Hann hlaut heiðursverðlaun Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar á Edduhátíðinni árið 2020 ásamt félögum sínum í Spaugstofunni. Þá hefur Örn um áratugaskeið verið einn eftirsóttasti skemmtikraftur og veislustjóri þjóðarinnar.
Tökur á nýrri þáttaröð hófust fyrr í þessum mánuði, en Ari Eldjárn og Jóhann Alfreð Kristjánsson munu þar snúa aftur sem stjórnendur þáttanna. Hægt er að horfa á fyrstu þáttaröðina á streymisveitunni Sýn+ og í opinni dagskrá á Sýn.
Í Taskmaster Ísland mæta fimm íslenskir skemmtikraftar og grínistar til leiks og keppa í óvæntum og oft furðulegum þrautum sem krefjast útsjónarsemi, hugmyndaauðgi og húmors. Allt er þetta gert í nafni heiðurs og hláturs en einnig til að finna út hver verður hinn eini sanni þrautakóngur þáttaraðarinnar.