Tveir ungir menn hafa verið handteknir í Svíþjóð grunaðir um skotárás við íþróttahöll í Stokkhólmi í gærkvöldi. 25 ára kona liggur þungt haldin á sjúkrahúsi eftir árásina. Lögregla í Svíþjóð segir ekki hægt að útiloka að fleiri en mennirnir tveir hafi verið að verki.
Sænska ríkisútvarpið, SVT, greinir frá.
Skotárásin var við Kämpetorpshöllina í Solberga í Älvsjö um níu leytið í gærkvöldi, þegar bæði var verið að leika fótbolta og handbolta á svæðinu.
Málið er rannsakað sem tilraun til manndráps. Eftir fjölda yfirheyrslna í nótt voru mennirnir tveir handteknir í morgun en þeir höfðu yfirgefið vettvanginn eftir árásina. Mennirnir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald.
Töluverður viðbúnaður var í nágrenni íþróttahallarinnar og stórt svæði í kringum hana girt af. Þá voru lestarferðir að Älvsjö-stöðinni stöðvaðar tímabundið á meðan lögregla leitaði árásarmannanna.
Talsvert af ungu fólki var á íþróttaviðburðunum í Kämpetorpshöllinni þegar árásin átti sér stað og lögregla varð að stýra umferð úr höllinni, sérstaklega vegna fótboltaleiks. Því var lokið skömmu fyrir 23.