Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir voru kallaðar út til að aðstoða mann sem hlekktist á og brotlenti á svifvæng sunnan við Mýrdalsjökul í dag.
23 björgunarhópar, þar á meðal Landhelgisgæslan og björgunarsveitir, komu að björgunaraðgerðum. Tæpar tvær klukkustundir liðu frá því að útkall barst þar til maðurinn var fluttur á sjúkrahús.
Hann brotlenti í djúpu gili eftir flug á svifvæng, eða paraglide, með hópi fólks í morgun. Þegar hópurinn lenti eftir flugið varð fólk vart við að einn vantaði.
„Þannig að þeir leggja aftur af stað til að leita að félaganum og sjá þá vænginn á flygildinu ofan í bröttu djúpu gili,“ segir Margrét Gunnarsdóttir, staðgengill upplýsingafulltrúa slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Með meðvitund þegar hann fannst
Björgunarhópar voru ekki lengi að finna manninn. Hann var með meðvitund þegar hann fannst og gat veifað til björgunarmanna.
Margrét segir aðstæður hafa verið erfiðar.
„Þetta er þröngt og djúpt gil þannig að það var svona fyrst útlit fyrir að þyrlan myndi ekki ná að hífa hann svona hátt. Fjallabjörgunarhópur frá Landsbjörg var mættur á svæðið og var tilbúinn til þess að koma honum niður á annan hátt.“
Þyrlunni tókst á endanum að hífa manninn upp og flytja hann til skoðunar og aðhlynningar á bráðamóttöku Landspítalans.
Tildrög slyssins eru til rannsóknar.