Stjórnarmaður í Tilveru, samtökum fólks um ófrjósemi, fagnar því að frjósemisvernd verði hluti af hefðbundnum sjúkdómatryggingum.
Tryggingafélagið Vörður hefur bætt frjósemisvernd við hefðbundnar sjúkdómatryggingar sínar. Hún felst bæði í fjárhagslegum bótum vegna meðferða og aðgengi að samtalsmeðferð ef áföll eða erfiðar aðstæður koma upp í ferlinu.
Talið er að einn af hverjum sex glími við ófrjósemi.
„Við vildum mæta þessum hópi sem fer sífjölgandi og þetta er líka í fyrsta sinn á Íslandi sem svona tryggingavernd nær yfir frjósemismeðferðir. Við sáum að það er þörf og hún fer sívaxandi,“ segir Þórdís Lind Leiva, forstöðumaður líf- og heilsutrygginga hjá Verði.
Jenny Elisabet Eriksson, stjórnarmaður í Tilveru, samtökum um ófrjósemi, segir það mjög algengt að fólk fari í frjósemismeðferðir og aukinn stuðningur breyti miklu.
„Þetta er svo algengt og það þekkja allir einhvern sem hefur farið í gegnum þetta. Allar upphæðir hjálpa fólki.“
Sjálf þekkir hún fólk sem hafi eytt allt að tuttugu milljónum í ferlið. Öll aðstoð við kostnað hjálpi.
„Kostnaður er oft meira en bara meðferðin sjálf. Þetta er náttúrulega frí úr vinnu, ferðakostnaður, lyf, þess vegna vítamín. Þannig að við fögnum þessu,“ segir Jenny.
Vörður er hluti af Arion og býðst þeim sem erum með sjúkdómatryggingu hjá Verði og þurfa á frjósemisverndinni að halda lán hjá Arion á sérstökum kjörum og án greiðslumats.
Jenny segir þetta munu hjálpa félagsmönnum í Tilveru. „Það eru mjög margir sem þurfa að taka lán til að fara í gegnum ferlið. Það að fá lán á betri kjörum er ómetanlegt.“