Þriðjungi færri hefja nú nám í lögreglufræði miðað við í fyrra. Fjöldi umsækjenda og þeirra sem komast inn hefur verið breytilegur frá ári til árs allt frá 2021. Ólafur Arnar Bragason, forstöðumaður mennta- og starfsþróunarseturs lögreglu, telur að helsta skýringin á fækkun í ár sé að ekki fékkst fé í kynningarátak.
„Núna í ár er embætti ríkislögreglustjóra búið að vera í aðhaldsaðgerðum og það var ekki til fjármagn í auglýsingaherferð að þessu sinni,“ segir Ólafur.
Alls sóttu 189 um og 67 stóðust öll inntökuskilyrði og skiluðu sér í námið. Í fyrra voru 235 sem sóttu um. Þrátt fyrir þessa fækkun telur Ólafur ekki neina ástæðu til þess að hafa áhyggjur. Vel verði fylgst með og rýnt í hvað veldur fækkuninni.
Þurfa að útskrifa að lágmarki 40 á ári
Fram til 2021 var hámarksfjöldi þeirra sem voru teknir inn í námið 48 en frá 2022 hefur markmiðið verið að taka inn að lágmarki 80 nemendur. Ólafur telur að þörf sé fyrir 40 nýútskrifaða lögreglumenn á ári.
„Það er í kringum svona 20 sem fara á eftirlaun á ári hverju og svo hefur annar eins fjöldi hætt störfum af öðrum ástæðum.“
Hann segir einnig að lögreglumenn endist vel í starfi og þeim líki starfið vel. Nýlega hafi verið skoðuð staðan á menntuðum lögreglumönnum þremur árum eftir útskrift. Niðurstaðan var að um 90% voru starfandi í lögreglunni.
Gæði umsækjenda skipta máli
Ólafur segir að námið sé blómlegt og umsækjendur fjölbreyttir. Meðalaldur þeirra sem hefja nám í haust er rétt rúm 25 ár. Menntun lögreglumanna hefur aukist samhliða áhuga á náminu, þó að enn séu ómenntaðir lögreglumenn á landinu. Inntökuskilyrði eru frekar ströng, gerð er krafa um ákveðna grunnmenntun og standast þarf sálfræðipróf, skrifleg verkefni og þrekpróf.
„Það er ekki bara fjöldinn sem skiptir máli, fjöldi umsækjenda. Það sem skiptir máli er gæði umsækjenda, að við séum að fá rétta fólkið og gott fólk sem vill þjóna samfélaginu af heilum hug og gera það betur.“