Eyfi lifir í draumi í nýju fyrirtæki

Eyjólfur Kristjánsson
Mynd: Eyjólfur Kristjánsson/Facebook
Nýtt félag undir nafninu Ég lifi í draumi slf. hefur verið skráð í firmaskrá. Tilgangur félagsins er listastarfsemi og tónlistarflutningur.
Samkvæmt skráningu er félagið með heimilisfang að Vallakór 2c í Kópavogi og er dagsetning félagssamnings 10. ágúst síðastliðinn. Rekstrarformið er almennt samlagsfélag og er félagið sjálfstæður skattaðili.
Tónlistarmaðurinn Eyjólfur Kristjánsson er ábyrgðaraðili félagsins og fer jafnframt með prókúruumboð þess. Reynir Þór Valgarðsson er skráður samlagsaðili.
Starfsemi Ég lifi í draumi slf. fellur undir sviðslistir.