Elín Líndal er fallin frá

Elín Rannveig Líndal er látin, tæplega sjötug að aldri. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga þann 9. maí síðastliðinn.
Morgunblaðið greindi frá andláti hennar.
Elín fæddist á Hvammstanga 24. maí 1956. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Héraðsskólanum á Reykjum í Hrútafirði og síðar diplómanámi í opinberri stjórnsýslu, stjórnun og rekstrarfræðum.
Elín var um áratugaskeið áberandi í sveitarstjórnar- og stjórnmálastarfi. Hún sat í sveitarstjórn Húnaþings vestra í fimm kjörtímabilum og gegndi áður starfi hreppstjóra Þorkelshólshrepps. Þá tók hún sæti á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Framsóknarflokkurinn á árunum 1988 til 1999.
Hún gegndi einnig fjölmörgum trúnaðarstörfum, meðal annars sem formaður Jafnréttisráðs og stjórnarformaður Heilbrigðisstofnunarinnar á Hvammstanga.
Eftirlifandi eiginmaður hennar er Þórir Ísólfsson. Saman eignuðust þau þrjú börn.