„Ekki eins og þetta sé eftir lýtalækni“
⚠️ Eldri en 6 mánuðir

„Ekki eins og þetta sé eftir lýtalækni“

„Ekki eins og þetta sé eftir lýtalækni“

Íslensk kona á sextugsaldri, sem fór í fegrunaraðgerð á vegum íslenska fyrirtækisins HEI Medical á síðasta ári, situr uppi með stór og ljót ör og þarf að gangast undir leiðréttingaraðgerð. Kastljós ræddi í kvöld við konuna sem kýs að koma ekki fram undir nafni.

„Þetta er ekki eins og þetta sé eftir lýtalækni,“ segir konan sem er kölluð Marta í viðtalinu.

Hún fór í andlitslyftingu í Istanbúl í Tyrklandi með milligöngu íslenska fyrirtækisins HEI Medical í október 2025. Marta fór í neðri andlitslyftingu í von um að líða betur með sjálfa sig.

„Ég var komin með svolítið mikla undirhöku og þetta var var farið að plaga mig svo ég ákvað að leita til lýtalæknis og fara í aðgerð.“

En af hverju að fara til Tyrklands?

„Ég þekki stelpu sem fór til Tyrklands í gegnum HEI til þessa læknis sem ég fór til og hún var mjög ánægð og útkoman var góð svo ég hafði samband við HEI og fór á vegum þeirra til Tyrklands.“

HEI Medical sérhæfir sig í milligöngu um heilbrigðisþjónustu erlendis svo sem tannlæknaþjónustu, hárígræðslu, magaermi og fegrunaraðgerðir.

Marta segist fyrst og fremst hafa ákveðið að fara til Tyrklands þar sem miklu munar á verði eða um 50 prósentum.

Fékk strax tíma í aðgerð

Tveimur vikum eftir að Marta setti sig í samband við HEI var búið að ákveða aðgerðardag á spítalanum Medical Park í Istanbúl og hún búin að panta sér flug út. Hún átti stuttan fund með lýtalækni í gegnum fjarfundabúnað og sendi myndir af sér.

Marta flaug út á fimmtudegi og átti að fara í aðgerð á laugardegi. Við komuna til Istanbúl var henni tjáð að læknirinn yrði ekki við á laugardeginum og að aðgerðin yrði strax á föstudeginum. Hún var látin bíða afskiptalaus allan föstudaginn en seinni partinn var henni sagt að aðgerðin yrði á laugardeginum eftir allt saman þrátt fyrir að læknirinn ætti ekki að vera við þá.

Það kom enginn til Mörtu á föstudeginum til að fara með henni yfir aðgerðina, skoða hana eða teikna á hana fyrir aðgerð. „Það talaði enginn við mig. Mér leið mjög skringilega og bað ítrekað um að fá að tala við lækninn.“

Svæfð án þess að nokkur kæmi við hana

Á laugardeginum var komið að aðgerðardegi.

„Það kemur hjúkrunarkona um morguninn, rétt fyrir átta, til að setja upp æðalegg og ég er ekki að horfa og svo þegar hún er búin og ég sný mér að henni sé ég að hún er búin að sprauta mig. Ég spyr hana með hverju hún hafi verið að sprauta mig og þá var hún að sprauta mig með kæruleysislyfi sem ég vissi ekki að ég myndi fá og mér var ekki sagt neitt.“

Svo er farið með Mörtu á skurðstofu. „Þegar ég kem inn á skurðstofuna tekur svæfingalæknir á móti mér og ég segi strax við hann að ég vilji hitta lækninn. Mér var farið að líða einkennilega og svo man ég ekkert meira fyrr en ég vakna. Ég var ekkert látin vita að það væri verið að fara að svæfa mig. Hann sagði ekkert við mig.“

Lýtalæknirinn sem átti að gera þessa aðgerð, hann kom aldrei til þín? Teiknaði á þig? Skoðaði þig? „Nei, nei, ekkert. Þú varst bara svæfð? „Já, ég var bara svæfð.“

Strax komin með sýkingu

Daginn eftir kemur lýtalæknirinn sem átti að gera aðgerðina inn á stofu til hennar ásamt hópi af starfsfólki.

„Þá er farið að taka af mér umbúðirnar, aðstoðarmaðurinn hans gerir það. Læknirinn er bara að horfa á.“ Marta hafði sterkt á tilfinningunni þarna að læknirinn hefði ekki gert aðgerðina sjálfur. Hún hitti hann aldrei á aðgerðardeginum og hann lét aðstoðarmann sinn alfarið um að skoða örin.

„Það er fyrst tekið af vinstra megin og það lítur vel út en svo er tekið af hægra megin og þá kemur í ljós að ég er með sýkingu. Ég er orðin mjög bólgin og aðstoðarmaðurinn segir við mig að ég fái sýklalyf og verði á spítalanum eina nótt í viðbót.“

Það gengur eftir og Marta er útskrifuð af sjúkrahúsinu á mánudeginum. Hún dvaldi á hóteli í Istanbúl næstu daga. Hún var verkjuð fyrstu tvo dagana en leið svo ágætlega.

Engin eftirfylgni á spítalanum

Marta fór á Medical Park fyrir heimför til Íslands til að láta skipta um umbúðir hjá hjúkrunarfræðingi en læknirinn leit ekkert meira á hana. Eftir það var hún útskrifuð og flaug heim til Íslands rúmri viku eftir aðgerð.

Ljót og stór ör

Þegar hún kom heim tók hún af sér umbúðirnar og brá þá verulega. Mikið ósamræmi var á milli hægri og vinstri hliðar. Þá hafði hún fundið fyrir óþægindum í vinstri kinninni.

Tiber, læknirinn sem á að hafa gert aðgerðina, kemur nokkrum sinnum á ári til Íslands á vegum HEI til að kynna þjónustu sína og ná í nýja viðskiptavini. Fyrir tilviljun kom hann nokkrum vikum eftir að Marta kom heim. Hún heyrir því í HEI og bókar tíma hjá lækninum.

Örin á konunni voru áberandi eftir aðgerðina
Örin eru mjög áberandi og liggja illa að mati lýtalækna.Aðsend / Dea Medica

„Ég segi honum að ég sé ekki ánægð með þetta en hann segir að ég þurfi að gefa þessu tíma. Hann segir að þetta líti allt vel út og ég bendi honum á kinnina á mér og hann segir mér að hafa ekki áhyggjur af þessu. Þetta muni hverfa og ég eigi að nudda þetta.“

Marta hlýddi því og nuddaði samviskusamlega á hverjum degi. Í janúar, þremur mánuðum síðar, var henni hætt að standa á sama.

„Þetta bara stækkaði og í framhaldi af því ákvað ég að panta tíma hjá lýtalækni hér heima til að láta skoða mig.“

Með dren í andlitinu í nokkra mánuði

Marta leitaði til Davíðs Jenssonar lýtalæknis á Dea Medica.

Hann áttaði sig strax á hvað þetta var? Hvað var þetta?

„Þetta var dren. Drenið var skilið eftir í kinninni á mér.“

Davíð bókaði Mörtu strax í aðgerð til að fjarlægja drenið. Hún hlaut ekki skaða af því en honum brá þegar hann tók á móti henni.

„Örin, þau liggja að mínu mati ekki nógu vel og ná of langt niður á háls. Það eru töluverð svokölluð hundseyru sem við sjáum á hálsi hennar eftir aðgerðina sem er eitthvað sem maður vill helst ekki sjá eftir þetta inngrip,“ segir Davíð.

Hann vill ekki dæma lækninn út frá þessu eina atviki. Fólk grói misvel og sumir séu með undirliggjandi sjúkdóma sem valdi því að örin sjáist meira en hjá öðrum. „En svona fljótt á litið fannst manni eins og það væri kannski ekki nægilega vel vandað til verka.“

Davíð segir að andlitslyfting eins og Marta gekkst undir sé með flóknari aðgerðum sem gerðar eru. Mjög mikilvægt sé að fara vel yfir með fólki hvers konar aðgerð það er að fara í.

En er mikilvægt að koma við sjúklinginn og finna hvernig allt liggur áður en farið er í svona aðgerð?

„Tvímælalaust. Það skiptir gríðarlega miklu máli að hitta sjúklinginn og koma við hann, teikna á hann og skipuleggja hvaða núönsum maður ætlar að beita í aðgerðinni. Þetta er með lengri aðgerðum sem við gerum, tekur hátt í fjóra tíma.

Eftirfylgni skiptir miklu máli

Davíð segir að aðgerðin sé bara helmingurinn af ferlinu.

„Síðan kemur eftirfylgnin og hún er ansi þétt eftir þetta inngrip. Í mínu tilfelli hitti ég mína sjúklinga mjög oft, tvisvar sinnum vikuna á eftir og svo í hverri viku næstu fjórar vikur þar á eftir. Ef allt gengur vel þá fer maður svo að lengja í endurkomunum eftir það og svo yfirleitt er síðasta endurkoman sirka ári eftir aðgerðina. Bæði er þetta til að fylgjast með hvernig hlutirnir gróa og skiptir miklu máli að fylgja fólki þétt eftir.

Hann segir einkennilegt að sjúklingum sem fari erlendis í aðgerðir sé ekki fylgt betur eftir. Ef eitthvað kemur upp á séu þessir sjúklingar bjargarlausir.

Mál Mörtu sé alls ekki einsdæmi. „Við höfum hér á þessari stöð fengið til okkar nokkur tilfelli af einstaklingum sem hafa lent í vandamálum eftir aðgerðir, sýkingum eða sárarofi eða slíku þar sem þau vita í rauninni ekkert hvert þau eiga að leita og vissulega þá tökum við á móti þeim og hjálpum þeim eins vel og við getum en þetta fer að jaðra við að vera eitthvað annað en læknisfræði þegar svona er.“

Hvetur fólk til að hugsa sig tvisvar um

Marta segist sjá eftir því að hafa farið í aðgerðina og að hafa ekki kynnt sér málið betur.

„Maður þarf að skoða það mjög vel hvert maður er að fara. Ég hafði ekkert áhyggjur þegar ég fór út, annars hefði ég ekki farið því að ég ég hélt að læknirinn myndi taka á móti mér þegar ég kæmi á spítalann og við myndum eiga samtal og að hann myndi skoða mig. Sem hann gerði svo aldrei. Svona eftir á, þegar maður er kominn heim, þá hugsar maður bara, lenti ég í þessu? Af hverju fór ég ekki og labbaði bara út? Mér finnst þetta mjög alvarlegt mál,“ segir hún að lokum.

Spítalinn svaraði henni aldrei

Eftir að Marta fór til Davíðs sendi hún póst á bæði Medical Park og HEI Medical. Hún lét fylgja með bréf Davíðs og myndbönd sem hann tók af dreninu í kinninni á henni. Hún fór fram á að fá aðgerðina endurgreidda og bætur.

Hún fékk aldrei svar frá spítalanum en Guðjón Sigurbjartsson, framkvæmdastjóri HEI Medical, hafði samband við spítalann fyrir hennar hönd.

Guðjón var gestur Kastljóss í kvöld. Hann sagði að spítalinn hefði boðist til að endurgreiða henni aðgerðina að fullu. Þá ætli spítalinn að greiða fyrir hana nýtt flug og bjóða henni í svokallaða leiðréttingaraðgerð til að laga það sem fór úrskeiðis síðast. Þá sagði Guðjón að læknirinn sem ætti að hafa gert aðgerðina hefði verið rekinn af spítalanum vegna atviksins. Vinnubrögð hans væru óásættanleg.

Hundruð Íslendinga farið í aðgerð í Tyrklandi

Læknirinn, Tiber, hafði fram til þessa sinnt flestum þeim Íslendingum sem hafa farið í aðgerð með milligöngu HEI í Tyrklandi. Hann hefur nokkrum sinnum komið til Íslands að kynna starfsemi sína og til stóð að hann kæmi hingað til lands á vegum HEI 2. maí næstkomandi. Guðjón segir að búið sé að aflýsa þeim viðburði.

Guðjón segir að um 100 Íslendingar hafi farið í fegrunaraðgerð á spítalanum. Hann beri enn fullt traust til spítalans og að ekki standi til að hætta samstarfi við hann.

Marta hefur ekki ákveðið hvort hún þiggur að fara í leiðréttingaraðgerð á Medical Park eftir fyrri reynslu sína.

#eftir #eins #ekki #þetta


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-04-20-ekki-eins-og-thetta-se-eftir-lytalaekni-473270

📰 Aðrar fréttir

Lýsir aðdragandanum áður en Trump missti stjórn á skapinu
📅 23.10.2026 👁️ 1
Lýsir aðdragandanum áður en Trump missti stjórn á skapinu
„Hvað er að þér? Ertu lasinn maður? Ég held í alvörunni að það sé eitthvað að þér,“ sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti við Andrew Feinberg, blaðaman...
Ó­ljóst hvers vegna þeir hittust í „völundar­húsi“ bílastæða­hússins - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 1
Ó­ljóst hvers vegna þeir hittust í „völundar­húsi“ bílastæða­hússins - Vísir
Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í Höfðatorgsmálinu svokallaða, sem nú hefur verið birtur. Þrír voru ákærðir í málinu og voru tveir þeir...
Snjóframleiðsla er hafin í Hlíðarfjalli
📅 23.10.2026 👁️ 1
Snjóframleiðsla er hafin í Hlíðarfjalli
Á morgun er fyrsti dagur vetrar og frost í veðurkortum víða um land fyrir helgina.Skíðaiðkendur á Akureyri hafa horft löngunaraugum upp í Hlíðarfjall ...
Hversu mikil tík er þessi pólitík?
📅 23.10.2026 👁️ 1
Hversu mikil tík er þessi pólitík?
Silvía Rut Ástvaldsdóttir skrifar: Það er eitt að fylgjast með því sem er að gerast í heiminum, hafa áhuga á pólitík og jafnvel blanda sér í umræðuþræ...
70 ár frá flóttanum til Íslands: „Ekki með mikið annað en sígarettupakkann sinn í vasanum“
📅 23.10.2026 👁️ 1
70 ár frá flóttanum til Íslands: „Ekki með mikið annað en sígarettupakkann sinn í vasanum“
Þess er minnst í dag að 70 ár eru liðin frá því að hópur flóttamanna frá Ungverjalandi kom til Íslands. Þetta var fyrsti hópur flóttamanna sem Íslendi...
Aukið öryggi í Mjódd: Færri felustaðir og gegnsæ strætóskýli
📅 23.10.2026 👁️ 1
Aukið öryggi í Mjódd: Færri felustaðir og gegnsæ strætóskýli
Mjódd er fjölfarnasta og stærsta strætóskiptistöð landsins og um hana fara meira en fjórar milljónir farþega árlega.Ítrekað hefur verið ráðist á fólk ...
Barátta George og Amal Clooney í svefnherberginu
📅 23.10.2026 👁️ 3
Barátta George og Amal Clooney í svefnherberginu
Leikarinn George Clooney, sem sló í gegn í þáttunum ER, var lengi draumaprins margra kvenna, en svo virðist sem það sé enginn dans á rósum að deika rú...
„Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
„Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ - Vísir
Mikill áhugi sé á veiðunum. „Það hefur verið talsverð fjölgun af nýjum tilvonandi veiðimönnum sem hafa verið að koma á námskeið og taka bæði skotvopna...
Mikilvægt að tryggja að gögn sem geymd séu í gagnaverum á Íslandi séu ekki „eitthvert rusl“
📅 23.10.2026 👁️ 2
Mikilvægt að tryggja að gögn sem geymd séu í gagnaverum á Íslandi séu ekki „eitthvert rusl“
Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir brýnt að móta stefnu og lagaramma utan um uppbyggingu og starfsemi gagnavera á Íslandi. Þ...
GP says she was forced out of job after raising concerns about gender treatment
📅 23.10.2026 👁️ 2
GP says she was forced out of job after raising concerns about gender treatment
The doctor says she faced a brutal investigation after she passed on complaints brought to her by other doctors.
Haukur segir þetta leyndarhyggju: „Algerlega óviðeigandi og ólýðræðisleg“
📅 23.10.2026 👁️ 4
Haukur segir þetta leyndarhyggju: „Algerlega óviðeigandi og ólýðræðisleg“
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir að almenningur þurfi að vita hverju ný stjórn Landsvirkjunar ætlar að breyta, leyndarhyggja sé orðin að m...
Skiptar skoðanir eftir ummæli Loga: „Hverskonar nálgun er þetta eiginlega?“
📅 23.10.2026 👁️ 4
Skiptar skoðanir eftir ummæli Loga: „Hverskonar nálgun er þetta eiginlega?“
Tómas Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þekkingarleysi Loga Einarssonar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og greinilega...
Fá tækifæri til að læra íslensku í vinnunni
📅 23.10.2026 👁️ 4
Fá tækifæri til að læra íslensku í vinnunni
Svokölluð Málbrú hefur reynst vel við að auka íslenskukunnáttu starfsfólks hjúkrunarheimila sem er af erlendum uppruna. Þar lærir fólk orð sem tengjas...
Sigmar kominn aftur á þing
📅 23.10.2026 👁️ 4
Sigmar kominn aftur á þing
Sigmar Guðmundsson sneri aftur á þingið úr veikindaleyfi í dag. Varaþingmaður hans, Valdimar Breiðfjörð Birgisson, víkur þar af leiðandi af þingi.Sigm...
Prince William reveals he once dreamed of being a DJ
📅 23.10.2026 👁️ 2
Prince William reveals he once dreamed of being a DJ
The Prince of Wales made a surprise appearance on the Graham Norton Show as part of a special edition to mark the Earthshot Prize.
Langsterkustu vísbendingarnar um jákvæð áhrif af sértækum byggðakvóta
📅 23.10.2026 👁️ 4
Langsterkustu vísbendingarnar um jákvæð áhrif af sértækum byggðakvóta
Vífill Karlsson og Sveinn Agnarsson lögðust yfir gögn frá árunum 2008-2024 fyrir nýja rannsókn Rannsóknarseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum um s...
Gríðar­legur við­búnaður í Frakk­landi vegna morgun­dagsins - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
Gríðar­legur við­búnaður í Frakk­landi vegna morgun­dagsins - Vísir
The Guardian greinir frá þessu. Laurent Nuñez, innanríkisráðherra Frakklands, sagði að á meðal þeirra sem myndu taka þátt í aðgerðum lögreglu yrðu sér...
Öryggisgalli ógnar enn vefsíðum: Óprúttnir aðilar gætu komist yfir persónuupplýsingar
📅 23.10.2026 👁️ 4
Öryggisgalli ógnar enn vefsíðum: Óprúttnir aðilar gætu komist yfir persónuupplýsingar
Öryggisgalli í PHP-forritunarmálinu ógnar enn vefsíðum víða um heim. Fagstjóri hjá CERT-IS segir ástandið enn alvarlegt en að hinn almenni borgari þur...
Gefur lítið fyrir gagnrýni minnihlutans: „Höfum verið fórnarlömb eigin velgengni“
📅 23.10.2026 👁️ 4
Gefur lítið fyrir gagnrýni minnihlutans: „Höfum verið fórnarlömb eigin velgengni“
Mikið af málum endurflutt á haustþingiÞingflokksformaður Samfylkingarinnar gefur lítið fyrir gagnrýni minnihlutans á hægagang á þingmálum það sem af e...
Skýtur skökku við að hagræða í rekstri bókasafna í ljósi niðurstaðna PISA
📅 23.10.2026 👁️ 4
Skýtur skökku við að hagræða í rekstri bókasafna í ljósi niðurstaðna PISA
Það skýtur skökku við að borgin vilji hagræða í rekstri bókasafna þegar íslenskir nemendur koma verst út í lesskilningi á meðal OECD-ríkjanna samkvæmt...
Segir frá hvernig honum hefur tekist að halda sér edrú í 12 ár - Þetta gerir hann alla morgna
📅 23.10.2026 👁️ 4
Segir frá hvernig honum hefur tekist að halda sér edrú í 12 ár - Þetta gerir hann alla morgna
Leikarinn Josh Brolin hefur opinberað leyndarmálið við að halda sig edrú, en 12 ár eru liðin síðan hann tók þá ákvörðun að hætta að drekka áfengi. Bro...
Vilhjálmur prins kemur óvænt fram í The Graham Norton Show
📅 23.10.2026 👁️ 4
Vilhjálmur prins kemur óvænt fram í The Graham Norton Show
Vilhjálmur Bretaprins kemur fram í þætti The Graham Norton Show í dag, föstudaginn 23. október. Vilhjálmur sat í sófanum ásamt Cate Blanchett, Hannah ...
Sig­mar snýr aftur - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
Sig­mar snýr aftur - Vísir
Þar af leiðandi mun Valdimar Breiðfjörð Birgisson fara af þingi, en hann kom inn sem varamaður í stað Sigmars. Þetta kemur fram á vef Alþingis. Þar ke...
Flokka lækna og hjúkrunarfræðinga eftir afköstum við lyfjaávísanir
📅 23.10.2026 👁️ 4
Flokka lækna og hjúkrunarfræðinga eftir afköstum við lyfjaávísanir
Félög lækna og hjúkrunarfræðinga í Danmörku hafa krafist svara frá Novo Nordisk um lista sem fyrirtækið heldur yfir það hversu mikið af lyfjum fyrirtæ...
Flokka lækna og hjúkrunarfræðinga eftir því hversu líklegir þeir eru til að ávísa lyfjum
📅 23.10.2026 👁️ 4
Flokka lækna og hjúkrunarfræðinga eftir því hversu líklegir þeir eru til að ávísa lyfjum
Félög lækna og hjúkrunarfræðinga í Danmörku hafa krafist svara frá Novo Nordisk um lista sem fyrirtækið heldur yfir það hversu líklegir þeir séu til a...
Viðbúnaður í París vegna fyrirhugaðra mótmæla
📅 23.10.2026 👁️ 4
Viðbúnaður í París vegna fyrirhugaðra mótmæla
70 þúsund lögreglumenn og þjóðvarðarliðar hafa verið kallaðir til um helgina í Frakklandi.Frönsk stjórnvöld gera það til að tryggja öryggi íbúa vegna ...
Leggja línur í jörð vegna áflugs á rafmagnslínur
📅 23.10.2026 👁️ 4
Leggja línur í jörð vegna áflugs á rafmagnslínur
Víða hefur orðið rafmagnslaust á Suðurlandi í haust vegna áflugs álfta og gæsa á rafmagnslínur. Slíkt áflug, og rafmagnsleysi vegna þess, er ekki óalg...
Meghan did not let her father see her children to protect them
📅 23.10.2026 👁️ 4
Meghan did not let her father see her children to protect them
Today, without exactly using the word, Meghan claimed vindication.
Applications are opening for 42 affordable rental homes in Playa Blanca
📅 23.10.2026 👁️ 5
Applications are opening for 42 affordable rental homes in Playa Blanca
Applications for 42 public homes for affordable rent in Playa Blanca, Lanzarote, are due to open on Monday, 26 October, following publication of the a...
Pawel Bartoszek: Ekkert til í því að stirt samband sé milli þingmanna og ráðherra Viðreisnar
📅 23.10.2026 👁️ 4
Pawel Bartoszek: Ekkert til í því að stirt samband sé milli þingmanna og ráðherra Viðreisnar
Alþingi er óvenjulegur vinnustaður þar sem starfið gengur í raun út á átök. Átök í þingsal standa hins vegar ekki í vegi fyrir góðu sambandi pólitískr...
Balti og Sunn­eva brugðu sér af bæ - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
Balti og Sunn­eva brugðu sér af bæ - Vísir
Fjörður (Fjord) er nýjasta mynd rúmenska leikstjórans Cristians Mungiu og segir frá rúmensk-norskri fjölskyldu sem flytur til þorps við norskan fjörð ...
Melania Trump samræmdi vopnahlé milli Rússlands og Úkraínu í bæ við víglínuna
📅 23.10.2026 👁️ 3
Melania Trump samræmdi vopnahlé milli Rússlands og Úkraínu í bæ við víglínuna
Melania Trump samræmdi vopnahlé milli Rússlands og Úkraínu í bæ við víglínuna Fréttin23. október 2026ErlentLeave a Comment Melania Trump. Moskva og Kí...
Bókasafnstillagan einungis til þess að bæta þjónustu við borgarbúa
📅 23.10.2026 👁️ 4
Bókasafnstillagan einungis til þess að bæta þjónustu við borgarbúa
Meirihluti menningarráðs Reykjavíkurborgar leggur til að framkvæmd verði heildstæð greining á rekstri, starfsemi og framtíðarskipulagi Borgarbókasafns...
Tíu þúsund manns heimsóttu Reykjaböðin í september
📅 23.10.2026 👁️ 4
Tíu þúsund manns heimsóttu Reykjaböðin í september
Reykjaböðin voru formlega opnuð 5. september síðastliðinn en þau eru staðsett fyrir neðan Kamba í Hveragerði. 40 starfsmenn vinna í böðunum. Það hefur...
Um­ferðar­slys á Breiðholtsbrautinni - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
Um­ferðar­slys á Breiðholtsbrautinni - Vísir
Þetta staðfestir Stefán Kristinsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Einn sjúkrabíll var sendur á vettvang. Slysið varð á brú á Bre...
Storm Austen: Strong winds and heavy rain batter southern UK
📅 23.10.2026 👁️ 2
Storm Austen: Strong winds and heavy rain batter southern UK
Millions remain under yellow weather warnings for wind and rain, with a second storm expected to hit Scotland and parts of northern England on Saturda...
Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið - Vísir
Í dómi þess efnis, sem kveðinn var upp þann 20. október og birtur í dag, segir að ágreiningur málsins hafi lotið að kröfu starfsmannsins um laun síðas...
Vincent Kompany: Bayern Munich manager taken to hospital after collapsing
📅 23.10.2026 👁️ 5
Vincent Kompany: Bayern Munich manager taken to hospital after collapsing
Bayern Munich manager Vincent Kompany is taken to hospital after collapsing as he watched the club's second team train on Friday.
Neysluvatn á Siglufirði í lagi
📅 23.10.2026 👁️ 4
Neysluvatn á Siglufirði í lagi
Niðurstaða úr sýnatöku Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra á neysluvatni á Siglufirði sýna að enga E.coli-gerla er að finna lengur. Íbúar hafa ver...
Óánægja með breytingar á Loftbrú: „Hrein og klár skerðing fyrir okkur landsbyggðarfólkið“
📅 23.10.2026 👁️ 4
Óánægja með breytingar á Loftbrú: „Hrein og klár skerðing fyrir okkur landsbyggðarfólkið“
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir að ekki sé hægt að tala um niðurskurð á loftbrú. Breytingin sé tímabær kerfisbreyting og eigi að auka fyrirs...
Staðfesta viðræður um vopnahlé í Oleshky
📅 23.10.2026 👁️ 5
Staðfesta viðræður um vopnahlé í Oleshky
Stjórnvöld í Úkraínu og í Rússlandi hafa staðfest að unnið sé að vopnahléi í bænum Oleshky í suðurhluta Úkraínu. Hvíta húsið lýsti því óvænt yfir í da...
Fyrrverandi frambjóðandi Pírata vill beita banvænu ofbeldi – annar vill svipta Trump-stuðningsmenn kosningarétti
📅 23.10.2026 👁️ 3
Fyrrverandi frambjóðandi Pírata vill beita banvænu ofbeldi – annar vill svipta Trump-stuðningsmenn kosningarétti
Fyrrverandi frambjóðandi Pírata vill beita banvænu ofbeldi – annar vill svipta Trump-stuðningsmenn kosningarétti Fréttin23. október 2026InnlendarLeave...
Má heita Lyngrós, Aragorn og Auróra
📅 23.10.2026 👁️ 4
Má heita Lyngrós, Aragorn og Auróra
Nöfnin Lyngrós, Aragorn, Auróra, Ragndís og Ksenía voru samþykkt með nýjustu úrskurðum mannanafnanefndar. Það voru nöfnin Enzo, Flórentína og Bessý ei...
Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri kynningu á framkvæmdum og hönnun Hlemms sem lögð var fyrir umhverfis- og skipulagsráð á miðvikudag. Reykjavíkurborg hefur nú ...
Snorri Másson snýr aftur með Fréttir vikunnar
📅 23.10.2026 👁️ 4
Snorri Másson snýr aftur með Fréttir vikunnar
Snorri Másson snýr aftur með Fréttir vikunnar Fréttin23. október 2026InnlentLeave a Comment Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi ritst...
Bjargað úr sökkvandi bíl á síðustu stundu
📅 23.10.2026 👁️ 4
Bjargað úr sökkvandi bíl á síðustu stundu
Snör handtök og sundtök tveggja manna í Queensland í Ástralíu í gær urðu til þess að þeim tókst að bjarga manni frá drukknun. Sá hafði keyrt út á veg ...
Óðinn ekki sáttur við ríkisstjórnina - „Landsbyggðin á betra skilið“
📅 23.10.2026 👁️ 4
Óðinn ekki sáttur við ríkisstjórnina - „Landsbyggðin á betra skilið“
Óðinn Svan Óðinsson oddviti L-listans á Akureyri, formaður bæjarráðs og fyrrum fréttamaður á RÚV er ósáttur við breytingar sem gerðar verða á niðurgre...
„Við ætlum ekki að loka bókasöfnum“
📅 23.10.2026 👁️ 4
„Við ætlum ekki að loka bókasöfnum“
Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar og oddviti Viðreisnar í Reykjavík, segir að það standi ekki til að loka bókasöfnum. Mikil umræða hefur skap...
Öldurnar til trafala þegar skútan bilaði á versta tíma - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
Öldurnar til trafala þegar skútan bilaði á versta tíma - Vísir
Fram kom í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg í dag að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hefði kallað út Björgunarfélag Akraness á sjötta tím...
„Við erum virki­lega þreyttir“ - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
„Við erum virki­lega þreyttir“ - Vísir
Fram kom í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg í dag að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hefði kallað út Björgunarfélag Akraness á sjötta tím...