Um er að ræða tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð á Holtsgötu 24 í gamla Vesturbænum, skammt frá bæði Grandanum og miðbænum.
Eignin skiptist í forstofu, stofu með svölum, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Á jarðhæð er 4,7 fermetra geymsla og svo fylgir íbúðinni einkabílastæði. Nánar má lesa um íbúðina á fasteignavef Vísis.
Gengið er inn í forstofu með fataslá og skóhillu og þaðan inn í stofu sem er rúmgóð og björt með aðgengi að svölum. Eldhúsið er með góðu skápaplássi og innbyggðri uppþvottavél og baðherbergið er flísalagt með baðkari með sturtu.
Myndir af íbúðinni má sjá hér að neðan: