Gallonið af dísil er komið yfir sex dollara í Bandaríkjunum og er það í fyrsta skipti sem það gerist, að því er bifreiðaeigendasamtökin AAA greina frá. Eldsneytisverð hefur hækkað mikið vegna stríðs Bandaríkjanna og Írans.
Gallon er um 3,8 lítrar. Dísill er mikið notaður í vöruflutninga á vegum, landbúnað og byggingarstarfsemi.