Friðrik Danakonungur hefur boðað formenn allra tólf stjórnmálaflokkanna í Danmörku til fundar frá klukkan 11 í fyrramálið. Þar með hefst þriðja stjórnarmyndunarlota í landinu.
Troels Lund Poulsen formaður Venstre átti fund með Danakonungi í gærkvöld þar sem hann skilaði stjórnarmyndunarumboðinu. Formanninum tókst ekki að mynda hægri stjórn með flokki sínum Venstre, Frjálslynda bandalaginu og Íhaldsflokknum. Lars Løkke Rasmussen, formaður Moderaterne, var ekki tilbúinn að styðja þá stjórn.
Samkvæmt danska ríkisútvarpinu er líklegt að Mette Frederikssen, formaður Jafnaðarmanna og settur forsætisráðherra, sækist aftur eftir stjórnarmyndunarumboði.