Í tilkynningu kemur fram að flokkarnir hafi metið það farsælast að halda því samstarfi áfram. Það hafi gengið vel, byggt á gagnkvæmu trausti og sameiginlegri sýn um framtíð Fjarðabyggðar.
Jóna Árný Þórðardóttir verður endurráðin sem bæjarstjóri en hún hefur sinnt stöðunni frá árinu 2023.
Meðal verkefna meirihlutans verða áframhaldandi uppbygging Mjóeyrarhafnar, framkvæmdir við nýtt íþróttahús á Eskifirði, fjölgun leiguhúsnæðis, aukin þjónusta við eldri borgara og áframhaldandi sókn í atvinnumálum.
Þá verði áhersla lögð á áframhaldandi traustan rekstur sveitarfélagsins, lægri skatta og markvissa atvinnuuppbyggingu.
Oddvitar framboðanna tveggja eru Ragnar Sigurðsson fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Þuríður Lillý Sigurðardóttir fyrir Framsóknarflokkinn.