Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð
„Þegar fólk kemur í Laugardalshöllina er það að fara að upplifa eitthvað sem það hefur aldrei séð áður á Íslandi. Aldrei. Ég fullyrði það. Þetta verður alveg brjálæðislega gaman,“ segir Bubbi Morthens sem undirbýr nú 70 ára afmælistónleika sína í næsta mánuði.
Af þeim sökum hefur hann tekið Háskólabíó á leigu í heilan mánuð þar sem hann æfir með stórri hljómsveit sinni.
Bubbi segist ekki aðspurður vita til þess að það hafi áður gerst að einhver leigi Háskólabíó eða viðlíka sal í mánuð til æfinga. Það sýni vel metnaðinn.
„Ég held að við séum að fara að gera eitthvað einstakt. Alveg eins og með 06.06.06 sem voru tónleikar sem brutu blað í sögunni hér heima. Nú held ég að við séum að fara að gera það sama og ég held að það verði mjög langt í að einhverjir hafi getuna til að gera svona tónleika eins og við erum að fara að gera.“