Brynjar Níelsson er nýr formaður stjórnar Faxaflóahafna. Stjórnin er skipuð sjö fulltrúum eigenda félagsins sem eru Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit og Borgarbyggð.
Fimm stjórnarmenn komu nýir inn í stjórn sem var kjörin á framhaldsaðalfundi á miðvikudag.
Nýir stjórnarmenn fyrir Reykjavíkurborg eru Regína Ásvaldsdóttir og Anna Björk Bjarnadóttir sem er óháð. Líf Lárusdóttir tekur sæti í stjórn fyrir Akraneskaupstað og Haraldur Benediktsson fyrir Hvalfjarðarsveit.