Í tilkynningu Vegagerðarinnar á Facebook segir að vegna skemdana verði brúin lokuð í nokkra daga en allt kapp sé lagt á að ljúka viðgerðum sem fyrst.
Í gærkvöldi hafnaði steypubíll úti í Þjórsá eftir umferðaróhapp á brúnni. Ökumaður bílsins var einn um borð og komst hann upp á hlið bílsins sem lá á hliðinni úti í ánni. Sigmaður þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar seig niður til ökumannsins og var hann hífður upp í þyrluna.
Steypubíllinn er enn í ánni en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi hefjast aðgerðir til að fjarlægja hann um hádegi.
Vegagerðin bendir ökumönnum sem eiga leið um Þjórsárdalsveg á hjáleið um Landveg til að komast í Landmannalaugar, inn í Veiðivötn eða á Sprengidalsleið.