Þjóðkirkjan gerir alvarlegar athugasemdir við fyrirhugaða upphæð sóknargjalda. Er raunar skorað á Alþingi að fara að lögum um gjaldið og hækka hina fyrirhuguðu upphæð en í umsögn kirkjunnar segir að um 60 prósent skerðingu sé að ræða, frá því sem lögin kveði á um.Þetta er alls ekki í fyrsta sinn sem þjóðkirkjan gerir athugasemdir við hversu lágt sóknargjaldið sé. Í þetta skipti gerir kirkjan athugasemd við fyrirhugaða upphæð sóknargjalds á næsta ári, samkvæmt frumvarpi til breytinga á ýmsum lögum vegna fjárlaga en það er nú til meðferðar í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis.
Þjóðkirkjan verulega ósátt og skorar á Alþingi að fara að lögum