Lögmaður Færeyja, Beinir Johannessen, og formaður landsstjórnar Grænlands, Jens-Frederik Nielsen, koma á morgun á fund Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra. Fram kemur í tilkynningu forsætisráðuneytisins að þeir ætli einnig að kynna sér aðstæður á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og ræða við alþjóðalega fjárfesta sem hafa einblínt á tækifæri á vestnorræna svæðinu og á norðurslóðum.
„Það er afar ánægjulegt að geta tekið á móti fulltrúum okkar næstu nágrannaþjóða og rætt við þá um sameiginlega hagsmuni okkar og sérstöðu hér í Norður-Atlantshafi og á Norðurslóðum,“ er haft eftir forsætisráðherra í tilkynningunni. Vestnorræna svæðið sem löndin tilheyri hafi verið fyrirferðamikið í umræðu um alþjóðamál að undanförnu. Fólk sem búi í þessum löndum hafi ekki farið varhluta af öryggisáskorunum á Norður-Atlantshafi og taki ábyrgð sína alvarlega.
Þetta verða fyrstu ferðir Nielsens og Johannessens til Íslands eftir að þeir tóku við embættum sínum. Forsætisráðherra Íslands fór til Þórshafnar í maí og til Nuuk í október í fyrra. Þá segir í tilkynningu forsætisráðuneytisins að þetta sé í fyrsta sinn sem leiðtogar ríkisstjórna ríkjanna hittist gagngert í einu ríkjanna til viðræðna um sameiginlega hagsmuni.