Marco Rubio á Íslandi

Björn Bjarnason skrifar:
Rubio og Pompeo eru báðir repúblikanar sem staðfestir þá fullyrðingu að almennt sýni utanríkisráðherrar úr Repúblikanaflokknum Íslandi meiri áhuga en þeir sem koma úr Demókrataflokknum.
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom hingað til lands um klukkan 18.00 mánudaginn 5. október og hélt af landi brott um hádegisbil þriðjudaginn 6. október til Grikklands og þaðan ætlaði hann um Portúgal aftur til Bandaríkjanna.
Á blaðamannafundi klukkan 10.30 6. október í Safnahúsinu við Hverfisgötu sagði Rubio að hann hefði aldrei komið hingað áður en af stuttri dvöl sinni nú og því sem hann hefði séð skyldi hann vel hvers vegna svo margir bandarískir ferðamenn legðu leið sína til landsins.
Hann hefði lofað Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur (ÞKG) utanríkisráðherra á ríkisoddvitafundi NATO í Ankara í byrjun júlí 2026 að sækja Ísland heim.
Antony Blinken, utanríkisráðherra í stjórn Joes Biden, kom hingað á fund í Norðurskautsráðinu á meðan það var og hét í maí 2021.
Síðasti bandaríski utanríkisráðherrann til að eiga tvíhliða fundi með forsætisráðherra og utanríkisráðherra Íslands var Mike Pompeo, utanríkisráðherra í fyrri stjórn Donalds Trump. Hann kom hingað 15. febrúar 2019.
Rubio og Pompeo eru báðir repúblikanar sem staðfestir þá fullyrðingu að almennt sýni utanríkisráðherrar úr Repúblikanaflokknum Íslandi meiri áhuga en þeir sem koma úr Demókrataflokknum.
Rubio lagði áherslu á landfræðilegt gildi Íslands fyrir varnir Norður-Atlantshafs og skuldbindingar Bandaríkjanna samkvæmt varnarsamningi þjóðanna. Öryggi kæmi á undan öllu öðru og á grunni þess yrði síðan unnt að þróa viðskipti. Fríverslunarsamningar væru ekki á dagskrá en hins vegar kæmu tvíhliða samningar til álita og slíkt samkomulag mætti gera við Ísland. Vildi hann stuðla að því að til yrði hópur bandarískra fyrirtækja sem liti til fjárfestinga hér og samstarfs við íslenska aðila.

Marco Rubio og Þorgerður Katrin Gunnarsdóttir við Höfða 6. október 2026.
Vel fór á með þeim Rubio og Þorgerði Katrínu á blaðamannafundinum og áður en viðræðurnar hófust í Safnahúsinu skoðaði Rubio Höfða í fylgd ÞKG.
Mikil veðurblíða var á Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu á meðan bandaríski ráðherrann dvaldist hér en næturfrost og kom í ljós að Rubio hafði séð norðurljós í fyrsta sinn að kvöldi 5. október.
Það sem vekur athygli allra sem fylgst hafa með umræðum um íslensk utanríkismál það sem af er árinu og æsingi ÞKG í garð Bandaríkjanna, meðal annars út af korti sem Trump birti á miðli sínum Truth Social, er hve ríka áherslu íslenski utanríkisráðherrann leggur á að þegja um allt sem að var stefnt af hennar hálfu fyrir 29. ágúst. Gerir það allan málflutning ráðherrans holan og máttlítinn.
Rubio blés á spurningu blaðamanns vegna fánakorts Trumps. Hann ræddi ekki í alvöru efni sem birtist á samfélagsmiðlum.
Sama dag og Rubio hélt hingað til lands birtu einræðisöfl klerkastjórnarinnar í Íran mynd af ÞKG á áróðursborðum gegn Ísrael (og þar með Bandaríkjunum) á strætum og torgum Teheran til að fagna árásum hennar á stjórn Ísraels á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.