Bandaríski blaðamaðurinn Michael Shellenberger segir fjármögnun stórra fjölmiðla eiga þátt í því sem hann kallar blekkingar þeirra um óeirðirnar í Frakklandi. Hann bendir á að franskir fjölmiðlar fái hundruðir milljóna evra í opinbera styrki, á ríkisframlag til fréttaveitunnar AFP og styrki Evrópusambandsins til svokallaðra „staðreyndavaktara“.
Í nýrri færslu á X sakar hann stjórnvöld um að fjármagna fjölmiðla og samtök sem móti umræðu um innflytjendamál, skilgreini svo sjálf hvaða upplýsingar teljist rangar og krefjist ritskoðunar á pólitískum andstæðingum sínum. Fjármögnunin sé að hans mati hluti skýringarinnar á því hvers vegna fjölmiðlar máli óeirðirnar í Frakklandi sem allt baráttu námsmanna en um leið og mótmæli eru við hægriöfgamenn er það málað upp sem ofbeldi.
„Ef þú vilt vita hvers vegna fjölmiðlar dreifa svona miklu af röngum upplýsingum um óeirðirnar, skaltu skoða þetta,“ skrifar Shellenberger áður en hann telur upp fjárframlög og alþjóðlega samninga.
Gagnrýnir fjármögnunina
Nútíminn hefur áður fjallað um greiningu Shellenbergers á fréttaflutningi af skólamótmælum og óeirðum í Frakklandi. Þar sakaði hann stóra fjölmiðla um að einblína á kennaraskort, lélegt skólahúsnæði og fjárskort en gera lítið úr pólitískri skipulagningu öfgavinstrihópa og því sem hann lýsir sem bandalagi öfgavinstris og íslamista.
Shellenberger sakar fjölmiðla um að segja ranga sögu af óeirðunum í Frakklandi
Í nýju færslunni gengur hann skrefinu lengra. Hann telur að skoða þurfi hverjir fjármagni miðlana og samtökin sem hafi áhrif á fréttaflutninginn, frekar en að líta á umfjöllunina sem röð ótengdra ritstjórnarákvarðana.
Franska ríkið greiddi 204,7 milljónir evra
Shellenberger bendir fyrst á beina fjölmiðlastyrki franska menningarráðuneytisins árið 2023. Ráðuneytið staðfestir að heildarfjárhæðin hafi verið 204,7 milljónir evra.
Samkvæmt styrkjatöflu ráðuneytisins nam heildarstuðningur við Le Monde um 8,40 milljónum evra, L’Humanité fékk um 6,58 milljónir og Libération um 6,32 milljónir. Meðal styrkþega var einnig Le Figaro, sem fékk um 10,59 milljónir evra.
Stuðningurinn var meðal annars veittur vegna dreifingar blaða, fjölbreytni í fjölmiðlun, endurnýjunar og hækkandi pappírskostnaðar. Ráðuneytið segir úthlutunina byggjast á hlutlægum og gagnsæjum viðmiðum og tilganginn vera að tryggja fjölbreytta og sjálfstæða fjölmiðlun.
Shellenberger lítur á þessi fjárhagslegu tengsl sem ástæðu til að draga í efa hversu óháðir fjölmiðlarnir séu stjórnvöldum þegar þeir fjalli um pólitísk átök og innflytjendamál.
AFP fékk 120 milljónir evra frá ríkinu
Gagnrýni hans á AFP er enn afdráttarlausari. AFP er alþjóðleg fréttaveita sem selur fréttir, ljósmyndir og myndbönd til fjölmiðla víða um heim. Hún rekur jafnframt umfangsmikla staðreyndavakt á 26 tungumálum. Stór hluti erlendra frétta sem íslenskir lesendur fá kemur frá AFP.
Í ársuppgjöri AFP fyrir 2025 kemur fram að fréttaveitan hafi fengið 120 milljónir evra frá franska ríkinu vegna verkefna í almannaþágu. Tekjur af sölu þjónustu námu 200,3 milljónum evra og heildartekjurnar 320,3 milljónum.
Ríkisframlagið nam því um 37,5 prósentum af heildartekjum AFP það ár. Framlagið nær til fréttaveitunnar í heild, en „staðreyndavaktin“ er einn hluti starfseminnar.
Shellenberger kallar AFP áróðursveitu frönsku ríkisstjórnarinnar.
Segir fólksflutningasamkomulagið tengja ríkisfé við ákveðna umræðu
Shellenberger tengir fjölmiðlafjármögnunina einnig við alþjóðlegt samkomulag Sameinuðu þjóðanna um örugga, skipulega og reglulega fólksflutninga. Alls greiddu 152 ríki atkvæði með því á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í desember 2018.
Í samkomulaginu er meðal annars hvatt til að hætta úthlutun opinbers fjár og efnislegs stuðnings til fjölmiðla sem ýti kerfisbundið undir óumburðarlyndi, útlendingaandúð, kynþáttafordóma og aðra mismunun gagnvart fólki sem flyst milli landa.
Þá er hvatt til kynningarstarfs sem upplýsi almenning um jákvætt framlag öruggra, skipulegra og reglulegra fólksflutninga á grundvelli staðreynda.
Shellenberger segir þetta vera skuldbindingu stjórnvalda til að fjármagna áróður fyrir stórfelldum fólksflutningum. Hann segir hugtök á borð við útlendingaandúð túlkuð svo vítt að þau nái einnig yfir gagnrýni á stefnu stjórnvalda í innflytjendamálum.
Milljónastyrkir til 15 „staðreyndavakta“
Shellenberger bendir næst á EDMO, evrópskt samstarfsnet „staðreyndavakta“, rannsakenda og annarra aðila sem vinna gegn upplýsingaóreiðu. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur fjármagnað bæði miðlæga starfsemi þess og svæðisbundnar miðstöðvar.
Samkvæmt upplýsingum framkvæmdastjórnarinnar telur netið nú 15 miðstöðvar. Fyrstu átta fengu samtals 11 milljónir evra, sex til viðbótar fengu átta milljónir og fyrstu átta fengu síðar tíu milljónir í frekari fjármögnun. Þá er greint frá um 8,8 milljóna evra áframhaldandi fjármögnun fyrir sex miðstöðvar.
Fjárhæðirnar varða mismunandi styrkjatímabil. Þær sýna engu að síður að tugum milljóna evra hefur verið varið í samstarfsnetið.
Framkvæmdastjórnin lýsir EDMO sem stuðningi við sjálfstætt samfélag aðila sem berjast gegn upplýsingaóreiðu. Shellenberger lýsir fjármögnuninni hins vegar sem leið stjórnvalda til að viðhalda áhrifum sínum yfir fjölmiðlum.
Tilkynningar ákveðinna aðila fá forgang
Í sömu færslu vísar hann til reglna Evrópusambandsins um svonefnda „trausta vaktara“, eða „trusted flaggers“, samkvæmt löggjöf sambandsins um stafræna þjónustu, DSA.
Þeir aðilar sem fá þessa viðurkenningu geta sent samfélagsmiðlum og öðrum síðum tilkynningar um efni sem þeir telja ólöglegt. Afgreiða þarf slíkar tilkynningar í forgangi.
Viðurkenningin er veitt af þar til bærum yfirvöldum í aðildarríkjum. Þessir „vaktarar“ eiga meðal annars að hafa sérþekkingu, starfa óháð og sinna tilkynningunum af nákvæmni og hlutlægni.
Kerfið er sagt eiga að taka á meintum brotum á lögum, til dæmis ólöglegri hatursorðræðu eða hryðjuverkaefni.
Shellenberger telur opinbera fjármögnun og slíkan forgang skapa áhrifakerfi þar sem sumir aðilar hafi mun greiðari leið en aðrir til að hafa áhrif á hvaða efni fái að standa á netinu.
Hugveitur fá fé frá ríkjum og tæknirisum
Shellenberger tekur einnig fyrir Institute for Strategic Dialogue, ISD, rannsóknarstofnun og hugveitu sem vinnur meðal annars að málum tengdum öfgastefnum, hatri og upplýsingaóreiðu.
Hann sakar stofnunina um að krefjast ritskoðunar á fólki sem sé ósammála henni um loftslagsmál, kynjamál og fólksflutninga. Gagnrýni hans beinist jafnframt að því að skýrslur ríkisfjármagnaðra hugveitna verði að fréttaefni sem fjölmiðlar taki undir og noti til að styðja frekari takmarkanir á umræðu.
Á birtum lista ISD yfir samstarfsaðila og fjármögnun frá ársbyrjun 2024 eru meðal annars breska og þýska utanríkisráðuneytið, bandaríska heimavarnarráðuneytið og dómsmálaráðuneytið, framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Google.org og Microsoft.
ISD segir sjálft í fjármögnunarstefnu sinni að stofnunin sé óháð og óflokksbundin. Samningar við styrktaraðila tryggi að fjárframlög hafi ekki áhrif á niðurstöður rannsókna eða ákvarðanir hennar og hún áskilji sér rétt til að hafna eða skila fé sem gangi gegn þessum reglum.
Rifjar upp deilur um þýska bændur og stjórnmálamenn
Shellenberger rifjar upp að Public hafi árið 2024 sakað ISD og þýska rannsóknar- og staðreyndamiðilinn Correctiv um að dreifa röngum upplýsingum um þýska bændur og stjórnarandstæðinga.
Í grein sem hann birti ásamt blaðamanninum Gregor Baszak 5. apríl það ár voru samtökin sökuð um að taka þátt í áhrifastarfsemi gegn pólitískum andstæðingum.
ISD hafði á sama tíma birt greiningu þar sem sumir skipuleggjendur bændamótmæla í Þýskalandi voru sagðir tengjast víðara neti hægri öfgamanna. Stofnunin sagði niðurstöðurnar hafa komið fram í umfjöllun Berliner Morgenpost og meira en tólf annarra svæðisbundinna dagblaða.
Segir tvöfaldan mælikvarða gilda um ofbeldi
Fjármögnunargagnrýnin tengist eldri ásökun Shellenbergers um að fjölmiðlar og stjórnmálamenn beiti ólíkum mælikvörðum eftir því hverjir standi að mótmælum og ofbeldi.
Í grein hjá Public 4. október sagði hann fjölmiðla og áhrifamikla stjórnmálamenn hafa í meira en áratug krafist takmarkana á efni hægriöfgamanna og gagnrýnenda innflytjendastefnu með þeim rökum að umræðan gæti leitt til ofbeldis.
Hann nefnir meðal annars viðbrögð Keirs Starmer, forsætisráðherra Bretlands, við óeirðunum eftir morðin á þremur stúlkum í Southport árið 2024. Starmer sagði þá að kynt hefði verið undir ofbeldi á netinu og beindi orðum sínum sérstaklega að stjórnendum samfélagsmiðla.
„Þetta á sér stað hjá ykkur. Og lögunum verður að fylgja alls staðar,“ sagði Starmer.
Shellenberger segir fjölmiðla nú sjálfa ýta undir upplýsingóreiðu frá vinstrinu sem kyndi undir ofbeldi á götum Frakklands. Að hans mati sé skortur á gagnrýni á slíkar frásagnir í hrópandi ósamræmi við fyrri kröfur um að þagga niður í hægrisinnuðum röddum til að koma í veg fyrir ofbeldi.
If you’re curious why the media is spreading so much false information about the riots, consider:
— The French Culture Ministry paid €204.7 million in direct aid to the news media in 2023, of which Le Monde received €8.3 million, L’Humanité €6.5 million and Libération €6.3 million
— The @afpfr runs „fact-checks“ in 26 languages, received €120 million from the French state in 2025, against €200.3 million in commercial revenue. @AFP is French government propaganda and disinformation
— European governments are committed through a UN agreement to spread pro-mass migration propaganda by funding it directly. The “migration compact,” which 152 governments voted for in the UN General Assembly in 2018, commits them to “stopping allocation of public funding… to media outlets that systematically promote intolerance, xenophobia, racism and other forms of discrimination towards migrants,“ which is broadly interpreted to cover criticism of mass migration policies
— To maintain control over news media, the European Commission funds a network of 15 fact-checking hubs with tens of millions of euros, and its rules require platforms to give priority to notices from “trusted flaggers.”
— Governments fund think tanks to produce reports, including ones demanding censorship, that the news media cover sympathetically and editorialize in support of.
— The @ISDglobal in London — which demands censorship of people it disagrees with on climate change, gender, and migration, refuses to speak with journalists, and lists a phony address — lists among its funders the British Foreign Office, the U.S. Departments of Homeland Security and Justice, the German Foreign Office and the European Commission, along with Google and Microsoft.
https://t.co/LpyxOXtFAY
— Public reported in 2024 that ISD and the German fact-checker Correctiv, both government-funded, had spread false claims about German farmers and opposition politicians.
— Michael Shellenberger (@shellenberger) October 5, 2026